Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Sigurður Bjarki flýgur upp heimslista áhugamanna
Sigurður Bjarki Blumenstein.
Fimmtudagur 21. febrúar 2019 kl. 16:15

Sigurður Bjarki flýgur upp heimslista áhugamanna

Líkt og Kylfingur greindi frá í vikunni náði Sigurður Bjarki Blumenstein flottum árangri á sterku áhugamannamóti sem fór fram í Portúgal dagana 13.-16. febrúar.

Sigurður Bjarki endaði í 29. sæti í mótinu og fer fyrir vikið upp um heil 719 sæti á heimslista áhugamanna í golfi. Hann situr nú í 921. sæti heimslistans og er sjötti efsti íslenski kylfingurinn á listanum.

Örninn 2025
Örninn 2025

Mótið í Portúgal var í styrkleikaflokki B sem útskýrir af hverju Sigurður Bjarki fer svo hátt upp listann en til samanburðar eru mót á GSÍ mótaröðinni hér heima í F flokki.

Bjarki Pétursson er sem fyrr efstur íslenskra karlkylfinga á heimslista áhugamanna en hann er í 165. sæti. Staða íslensku kylfinganna á heimslistanum ætti að skipta þá töluverðu máli því undanfarin ár hafa efstu kylfingarnir unnið sér inn sæti í landsliðshópum Íslands fyrir EM og önnur sterk mót.

Staða efstu íslensku kylfinganna á heimslista karla í golfi:

165. sæti: Bjarki Pétursson
459. sæti: Gísli Sveinbergsson
469. sæti: Birgir Björn Magnússon
699. sæti: Rúnar Arnórsson
712. sæti: Aron Snær Júlíusson
921. sæti: Sigurður Bjarki Blumenstein
1510. sæti: Björn Óskar Guðjónsson
1611. sæti: Hlynur Bergsson
1709. sæti: Ingvar Andri Magnússon
1789. sæti: Egill Ragnar Gunnarsson

Hér er hægt að sjá heimslista áhugamanna í heild sinni.

Ísak Jasonarson
[email protected]