Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Fréttir

Sigurður og Davíð léku best í Skálamóti GG
Laugardagur 25. febrúar 2012 kl. 19:57

Sigurður og Davíð léku best í Skálamóti GG

Golfklúbbur Grindavíkur stóð fyrir Skálamóti á Húsatóftavelli í dag. Ákveðið var að blása til mótsins með skömmum fyrirvara og mættu um 35 kylfingar til leiks og léku inn á sumarflatir á Húsatóftavelli sem er nýlunda hjá klúbbnum á þessum árstíma.

Örninn 2025
Örninn 2025

Sigurður Þór Birgisson úr GG sigraði í punktakeppninni en hann fékk alls 41 punkt í mótinu. Halldór Einir Smárason úr GG var einnig með 41 punkt en var með færri punkta á seinni níu holunum. Björn Pálsson varð svo í þriðja sæti á 38 punktum.

Meistaraflokkskylfingurinn Davíð Gunnlaugsson úr Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ lék á besta skorinu í mótinu en hann lék á 71 höggi eða pari Húsatóftavallar. Hávarður Gunnarsson úr GG hlaut nándarverðlaunin sem veitt voru á 13. holu en hann var aðeins um 50 sentímetra frá holu eftir teighöggið.

Allur ágóði af mótinu rennur til uppbyggingar á nýjum golfskála sem Grindvíkingar taka í notkun í vor. Blíðskaparveður var á Húsatóftavelli í dag og brostu margir kylfingar sínu breiðasta með að geta leikið inn á sumarflatir á þessum árstíma.


Myndir/Kylfingur.is: Á efstu myndinni má sjá Gunnar Sigurðsson, mótsstjóra, Björn Pálsson (3. sæti) og Halldór Smárason (2. sæti). Á myndina vantar sigurvegarann Sigurð Þór Birgisson.



Stórt og mikið aðkomuvatn hefur hreiðrað um sig fyrir aftan 18. flötina á Húsatóftavelli sem setur skemmtilegan svip á lokaflötina.


Davíð Gunnlaugsson lék á 71 höggi eða á pari á Húsatóftavelli í dag.