Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Sigurður og Saga golfherma meistarar
Saga Traustadóttir og Sigurður Arnar Garðarsson, Landsmeistarar í golfhermum.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 2. apríl 2023 kl. 19:18

Sigurður og Saga golfherma meistarar

Saga Traustadóttir og Sigurður Arnar Garðarsson urðu Landsmeistarar í golfhermum en keppt var á Grafarholtsvelli í Trackman. Eftir undankeppni síðustu vikur kepptu 8 kylfingar úr hvorum flokki höggleik í 36 holur í íþróttamiðstöð GKG.

Saga varð titilinn frá því í fyrra en Guðrún Brá Björgvinsdóttir var með forystu eftir fyrri 18 holurnar en þó ekki nema eitthögg. Saga tryggði sér sigurinn á seinni hringnum en lék á 7 höggum undir pari og vann með tveggja högga mun.

Örninn 2025
Örninn 2025

Sigurður Garðarsson vann nokkuð örugglega í karlaflokki og endaði 36 holurnar á 19 höggum undir pari, aldeilis frábært golf hjá hinum unga kylfingi sem vann alþjólegt mót nýlega og fékk fyrir það rúmar 3 milljónir króna í verðlaunafé. Félagar hans úr GKG, þeir Gunnlaugur Árni og Aron Snær Júlússon voru í næstu sætum, Gunnlaugur á -13 og Aron á -6.

Sigurvegararnir fengu 100 þús. kr. í verðlaunafé, 2. sætið fékk 50 þús. og 3. sætið 30 þúsund kr. 

Vallarstilingar voru þannig í úrslitunum að nokkur vindur var og brautir mjúkar. Í pútti var „gefið“ innan við 2,4 metra. 

Sýnt var frá mótinu á Stöð 2 sport og á Facebook.

Sigurður Arnar Grétarsson hefur verið á mikilli siglingu í golfherma-golfi! Hér er hann í viðtali hjá Sigmundi Einari Mássyni en sýnt var frá mótinu í beinni útsendingu á Stöð 2 sport og á Facebook.

Smellið hér til að sjá útsendinguna frá úrslitadeginum.