Song-Hee Kim leiðir á Kraft Nabisco
Song-Hee Kim frá S-Kóreu er efst á Kraft Nabisco Championship, fyrsta risamóti ársins, en hún er á sjö undir pari eftir að hafa leikið annan hringinn í nótt á fjórum undir.
Hún er einu höggi á undan þekktum kylfingum eins og Cristie Kerr, Karen Stupples og Lorenu Ochoa og höggi þar á eftir er m.a. Karrie Webb, og Suzann Pettersen er tveimur höggum frá toppnum þannig að baráttunni er hvergi nærri lokið.
Kim hefur verið afar sterk það sem af er ári og hefur verið í topp-10 í öllum þremur mótum sínum í ár, en hún er enn án sigurs á móti á ferlinum og er sú hæst skrifaða á heimslistanum, 14. sæti, sem hefur ekki sigrað á móti.
Mynd úr safni golfsupport.nl - Song-Hee Kim


