Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Spenna og gott golf á Íslandsmótinu í holukeppni
Pamela Ósk Hjaltadóttir.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 22. júní 2025 kl. 21:00

Spenna og gott golf á Íslandsmótinu í holukeppni

Það stefnir í mikla spennu og skemmtilega leiki í undanúrslitum á mánudegi á Íslandsmótinu í holukeppni karla og kvenna á mánudagsmorgni. Bestu kylfingar landsins hafa leikið hörku flott golf síðustu tvo daga.

Í kvennaflokki leika í fyrri undanúrslitaleiknum Palmela Ósk Hjaltadóttir úr GM á móti Akureyringnum Andreu Ýr Ásmundsdóttur.

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Andrea lenti í vandræðum í 16 manna úrslitum í leik á móti Þórdísi Geirsdóttur, fyrrum Íslandsmeistara kvenna og margföldum Íslandsmeistara öldunga. Þær fóru í bráðabana og þar hafði Andrea betur á 1. holu. Pamela hefur unnið báða sína leiki örugglega.

Í hinum undanúrslitaleiknum leika Heiðrún Anna Hlynsdóttir frá Selfossi á móti Ásdísi Rafnar Steingrímsdóttur. Heiðrún sem er líklega besta golfkona landsins um þessar mundir lenti í hörku viðureign á móti Auðri B. Snorradóttur úr GM í 8 manna úrslitum en vann með einni holu. Það verður áhugavert að sjá hvernig Ásdísi gengur á móti henni.

Það stefnir í magnaðan úrslitaleik.

Aron Snær Júlíusson.

Hjá körlunum hefur gengið á ýmsu. Íslandsmeistarinn í holukeppni 2024, Logi Sigurðsson úr GS tapaði í fyrstu umferð holukeppninnr eftir að hafa verið á besta skorinu í höggleiknum. Andstæðingurinn var reyndar enginn aukvisi því Kristófer Orri Þórðarson hefur lengi verið meðal bestu kylfinga landsins. En svona er nú holukeppnin, þar getur allt gerst.

Í fyrri undanúrslitaleiknum eru Reykvíkingarnir Böðvar Bragi Pálsson og Tómas Eiríksson Hjaltesteð. Tómas er sjóðheitur eftir góða ferð á Opna áhugamannamótið í Englandi og vann Kristófer Orra í 8 manna úrslitum í hörku leik en fær félaga sinn úr GR á móti sér í undanúrslitum og Böðvar er með betri kylfingum landsins og vann Andra Þór Björnsson í 8 manna úrslitum með einni holu.

Í hinum leiknum eru tveir félagar úr GKG, Aron Snær Júlíusson, tvöfaldur Íslandsmeistari í höggleik og Arnar Daði Svavarsson. Þar eigast við reynslan og ungviðið. Aron vann Kristján Þór Einarsson í 8 manna úrslitum og Arnar Daði vann Gunnar Þór Heimisson, líka úr GKG.