Stemmning í Hvíta tjaldinu: Hvernig losnar forsetinn við „sjank“?
„Hvernig kemur maður í veg fyrir „sjank“?, spurði Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ á fundi í Hvíta tjaldinu á Leirdalsvelli með efstu kylfingum mótsins að loknum þriða degi.
Forsetinn fékk það svar að best væri að æfa meira og næst best væri að tala bara ekki um „sjankið“ sem er jú eitt það versta sem margir kylfingar upplifa í sínu golfi.
Stemmningin á fundinum var góð, kylfingarnir Þórður Rafn Gissurarson, Axel Bóasson, Birgir Leifur Hafþórsson, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Ólafía Þ. Kristinsdóttir og Haukur Örn Birgisson svöruðu spurningum um golf dagsins og fleira. Birgir Leifur svaraði spurningu um undirbúning fyrir lokadag á þann veg að hann myndi verja honum í faðmi fjölskyldunnar og líkega skipta á einni eða tveimur kúkableijum, og uppskar hlátur og klapp.
Þessi tilraun með svona spjall fund að loknu golfi á Íslandsmótinu hefur heppnast vel. Eftir lokadaginn í kvöld verður síðasti fundurinn en hann er öllum opinn og gestir geta lagt spurningar fyrir kylfingana.