Fréttir

Stórframkvæmdir í Grafarholti framundan
Sjöunda brautin liggur í mjög fallegu umhverfi Grafarholts en í gegnum tíðina hefur flötin verið misjöfn og þá er brautin ekki góð. Þrátt fyrir þessa neikvæðu punkta er holan skemmtileg.
Þriðjudagur 10. nóvember 2020 kl. 16:41

Stórframkvæmdir í Grafarholti framundan

Á næstu mánuðum og misserum á að ráðast í þrjár stórframkvæmdir hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Nú er unnið að frekari útfærslum þessara framkvæmda og eiga félagsmenn von á kynningu á þessum verkefnum á næstu vikum.

Þetta kemur fram í pistli Björns Víglundssonar til félaga GR. „Markmið okkar er að hefja framkvæmdir á vormánuðum. Þetta er stór áfangi hjá GR og mun aðstaða félagsmanna til þess að stunda golfíþróttina allt árið um kring batna til mikilla muna. Það verður spennandi að sýna ykkur betur þessi áform á næstunni,“ segir Björn.

Stórframkvæmdir á vegum Golfklúbbs Reykjavíkur
Á dögunum samþykkti stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur fyrstu drög framkvæmda. Á næstu mánuðum og misserum á að ráðast í þrjár stórframkvæmdir á vegum klúbbsins. Þau eru:

  1. Íþróttahús byggt við Bása þar sem golfhermar og aðstaða fyrir stutta spilið verði fundinn staður, við hönnun er gert ráð fyrir stækkunarmöguleikum hússins.
  2. Þjónustubygging við hlið Bása þar sem vélar verða geymdar, viðhaldsþjónustu sinnt ásamt starfsmannaaðstöðu.
  3. Fyrsti áfangi endurbyggingar vallarins í Grafarholti, áætlað er að sjöunda og ellefta braut vallarins verði fyrstar í röðinni. Lítil truflun verður á golfleik á meðan framkvæmdum stendur.

„Nú er unnið að frekari útfærslum þessara framkvæmda og eiga félagsmenn von á kynningu á þessum verkefnum á næstu vikum. Markmið okkar er að hefja framkvæmdir á vormánuðum. Þetta er stór áfangi hjá GR og mun aðstaða félagsmanna til þess að stunda golfíþróttina allt árið um kring batna til mikilla muna. Það verður spennandi að sýna ykkur betur þessi áform á næstunni.

Ég leyfi mér að fullyrða að engin íþrótt hafi orðið fyrir minni röskun vegna heimsfaraldursins en golf. Það sýnir vel hversu mikla aðlögunarhæfni íþróttin og kylfingarnir hafa. Enda er ekki flókið mál að halda fyrirmyndarfjarlægð við golfleik. Eitt af vetrarverkefnum golfhreyfingarinnar er að tryggja, verði faraldurinn enn á kreiki hér í vor, að golf verði leikið næsta sumar án nokkurra truflana. Golfreglurnar og sóttvarnarreglur fara vel saman og golf er örugg og holl útivera sem mikilvægt er að kylfingar fái að stunda,“ segir formaður GR.

Ellefta brautin, par 3 í Grafarholti hefur ekki verið ofarlega á vinsældalista kylfinga. Kylfingur.is/pket.

Miklar framkvæmdir verða við Bása.