Styktarmót fyrir Hlyn Þór Haraldsson
Laugardaginn 21. ágúst verður haldið styrktarmót fyrir Hlyn Þór Haraldsson.
Hlynur Þór Haraldsson sem lengi hefur starfað innan golfsamfélagsins er að berjast við krabbamein.
Markmið mótsins er að safna fé til styrktar honum og hans fjölskyldu.Nánari upplýsingar um mótið
Keppnisfyrirkomulag:
Mótið er punktamót og er hámarksforgjöf 36 hjá körlum og 36 hjá konum. Keppt er í karla- og kvennaflokki. Einnig verða verðlaun veitt fyrir 3 bestu skorin án forgjafar í bæði karla og kvennaflokki. Glæsileg verðlaun eru í öllum flokkum en einnig eru nándarverðlaun á öllum par 3 holum sem og lengsta teig högg EKKI á braut á 12 holu.
Vegleg verðlaun í boði en þetta verður án efa eitt af glæsilegustu mótum sumarsins.
Viljum við þakka öllum þeim sem vildu leggja málstaðnum lið með því að gefa verðlaun í mótið.
Einnig verður hægt að kaupa högg á hringnum til skemmtunar og þæginda.
Lágmarks mótsgjald er 6.000 kr. og renna mótsgjöld óskipt til Hlyns og fjölskyldu hans.
Þeir sem vilja styrkja fjölskylduna án þess að taka þátt í mótinu geta gert það með því að leggja inn á þennan reikning:
Rkn: 0370-22-037502 Kt: 310885-8199
Rkn: 0370-22-037502 Kt: 310885-8199