Þorbjörn Guðjónsson fór holu í höggi í Meistaramóti GR
Þorbjörn Guðjónsson, hjartalæknir, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 13. holu Korpúlfsstaðavallar á öðrum degi Meistaramóts GR.
Þorbjörn, sem leikur í karlaflokki 50+, sló með níu járninu sínu af teig, en holan, sem er par 3 hola, er um það bil 120 metrar að lengd. Að sögn Þorbjörns miðaði hann hægra megin við flaggstöngina, en hún var skorin frekar aftarlega á flötinni, vinstra megin. Höggið heppnaðist vel og lenti boltinn á flöt á rúllaði eftir brotinu til vinstri í átt að holu. Þar sem að flötin liggur hærra en teigurinn sést ekki öll flötin frá teignum, því var Þorbjörn ekki viss hvort að boltinn hefði farið ofan í holuna fyrr en að hann var kominn inn á flötina.
Þetta er í fyrsta skipti sem Þorbjörn slær draumahöggið, en hann er með sex í forgjöf og því með töluverða reynslu.
Kylfingur.is óskar Þorbirni til hamingju með draumahöggið.


