Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Þriggja stiga draumahögg hjá Ágústi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 28. maí 2025 kl. 17:53

Þriggja stiga draumahögg hjá Ágústi

Suðurnesjakylfingurinn Ágúst Orrason komst í hóp Einherja þegar hann fór holu í höggi á 5. braut (áður 13. hola) Hólmsvallar í Leiru í gær. Ágúst sem var þekkt þriggjastiga skytta í körfunni með Keflavík hitti þetta fína högg með 6-járni í blíðunni í Leiru.

„Ég sló þetta með léttu „fade-i“ með 6-járninu. Boltinn lenti inn á flöt og svo misstum við sjónar á honum og svo var hann í holu þegar ég kom, ekki mjög leiðinlegt,“ sagði Ásgeir.

Kappinn var í stuði en að sögn meðspilara hans sullaði Ásgeir niður 7 metra fuglapútti á síðustu flöt til að leika hringinn á parinu í fyrsta skipti.

Örninn 2025
Örninn 2025