Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Tinning fagnaði sínum öðrum sigri – efstur á peningalistanum
Steen Tinning tryggði sér sigur á opna enska meistaramótinu fyrir eldri kylfinga með frábærum leik á lokasprettinum í gær. Mynd/Europeantour.com
Mánudagur 7. október 2013 kl. 13:30

Tinning fagnaði sínum öðrum sigri – efstur á peningalistanum

Steen Tinning tryggði sér sigur á opna enska meistaramótinu fyrir eldri kylfinga með frábærum leik á lokasprettinum í gær.

Steen Tinning tryggði sér sigur á opna enska meistaramótinu fyrir eldri kylfinga með frábærum leik á lokasprettinum í gær. Danski kylfingurinn hefur nú sigrað á tveimur mótum á þessari ört vaxandi mótaröð en hann er nýliði á mótaröðinni. Santiago Luna var með með tveggja högga forskot á Tinning þegar þrjár holur voru eftir – en Tinning fékk tvo fugla í röð á 16. og 17. braut á meðan Luna tapaði höggi á þeirri 17.

Tinning endaði á 17 höggum undir pari eða 199 höggum en leikið var á Rockliffe Hall vellinum í Durham á Englandi. Fyrir sigurinn fékk Tinning um 6 milljónir kr. í verðlaunafé en hann er efstur á peningalistanum þegar þrjú mót eru eftir með samtals um 32 milljónir kr. í verðlaunafé.

Lokastaðan á mótinu: