Fréttir

Titleist Unglingaeinvígið fer fram á föstudaginn
Tómas Eiríksson Hjaltested sigraði í fyrra.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
fimmtudaginn 17. september 2020 kl. 16:54

Titleist Unglingaeinvígið fer fram á föstudaginn

Titleist Unglingaeinvígið fer fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á morgun, föstudaginn 18. september. Allir bestu unglingar landsins hafa boðað komu sína og ljóst að hart verður barist um titilinn. Mótið er boðsmót þar sem stigahæstu kylfingum landsins á mótaröð GSÍ er boðin þátttaka.

Eftirfarandi kylfingar taka þátt í Titleist Unglingaeinvíginu árið 2020:

14 ára og yngri

  • Veigar Heiðarsson, GA
  • Markús Marelsson, GK
  • Skúli Gunnar Ágústsson, GA
  • Guðjón Frans Halldórsson, GKG
  • Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR
  • Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS
  • Helga Signý Pálsdóttir, GR
  • Pamela Ósk Hjaltadóttir, GR
  • Leó Róbertsson, GM
  • Eva Kristinsdóttir, GM

15-16 ára

  • Dagur Fannar Ólafsson, GKG
  • Bjarni Þór Lúðvíksson, GR
  • Óskar Páll Valsson, GA
  • Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
  • María Eir Guðjónsdóttir, GM
  • Nína Margrét Valtýsdóttir, GR
  • Katrín Sól Davíðsdóttir, GM
  • Bjarney Ósk Harðarsdóttir, GR
  • Tristan Snær Viðarsson, GM
  • Sara Kristinsdóttir, GM

17-18 ára

  • Logi Sigurðsson, GS
  • Breki Gunnarsson Arndal, GKG
  • Björn Viktor Viktorsson, GL
  • Mikael Máni Sigurðsson, GA
  • Kristín Sól Guðmundsdóttir, GM
  • Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR
  • Ásdís Valtýsdóttir, GR
  • Marianna Ulriksen, GK
  • Arnór Daði Rafnsson, GM
  • Aron Ingi Hákonarson, GM

Allir aldursflokkar leika 7 holu „shootout“ í undankeppni þar sem þeir 3 kylfingar sem standa eftir komast í úrslita einvígið. Sigurvegari Titleist Unglingaeinvígisins 2019, Tómas Eiríksson Hjaltested, fær þátttökurétt beint í úrslitaeinvíginu.

Gert er ráð fyrir að úrslitaeinvígið hefjist á 1. braut um klukkan 16:00.

Unglingaeinvígið í Mos hefur farið fram hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar frá árinu 2005 og er þetta því í 16. sinn sem mótið fer fram.

Sigurvegarar Unglingaeinvígisins frá upphafi.

2005 – Sveinn Ísleifsson
2006 – Guðni Fannar Carrico
2007 – Andri Þór Björnsson
2008 – Guðjón Ingi Kristjánsson
2009 – Andri Már Óskarsson
2010 – Guðrún Brá Björgvinsdóttir
2011 – Ragnar Már Garðarson
2012 – Aron Snær Júlíusson
2013 – Ingvar Andri Magnússon
2014 – Ingvar Andri Magnússon
2015 – Björn Óskar Guðjónsson
2016 – Henning Darri Þórðarson
2017 – Ragnar Már Ríkarðsson
2018 – Dagbjartur Sigurbrandsson
2019 – Tómas Eiríksson Hjaltested