Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Tómas stóð sig vel á Opna áhugamannamótinu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 19. júní 2025 kl. 17:38

Tómas stóð sig vel á Opna áhugamannamótinu

Tómas Eiríksson Hjaltesteð úr GR stóð sig best af sex íslenskum kylfingum sem tóku þátt á Opna breska áhugamannamótinu í Englandi en það er eitt af stóru mótum áhugamanna.

Leiknar voru 36 holur í höggleik á Royal St. Georges en þar er OPNA mót atvinnumanna reglulega haldið og síðan var leikið á nágrannavellinum Royal Cinque Ports og komst Tómas áfram en Logi Sigurðsson úr GS komst í fjölmennum bráðabana um sæti í 64 manna úrslitum en datt út á 2. holu.

Tómas var á -2 (69-71) í höggleiknum og endaði í 58. sæti. Hann lék svo mjög vel í 64 manna úrslitunum og vann hinum franska Paul Beauvy sem lék á -6 í undankeppnini. Tómas fór mikinn í holukeppninni við Paul og vann öruggan sigur 5/3. Tómas lenti svo á móti Tim Wiedemeyer frá Þýskalandi í 32 manna úrslitum en varð að játa sig sigraðan en sá þýski lék frábært golf og vann 5/3.

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Í höggleiknum voru 288 keppendur en sex Íslendingar voru þar:

Tómas Eiríksson Hjaltesteð GR (69-71) 58. sæti.

Logi Sigurðsson -1 (70-71) jafn í 60. sæti en tapaði í 25 mannna bráðabana.

Gunnlaugur Árni Sveinsson GKG +1 (75-68) 115. sæti.

Veigar Heiðarsson GA +3 (77-69) 178. sæti.

Dagbjartur Sigurbrandsson GR +3 (75-72) 185. sæti.

Guðjón Frans Halldórsson +6 (75-73) 211. sæti.

Sigur í mótinu gefur þátttökurétt á Opna breska meistaramótinu, Opna bandaríska meistaramótinu og Masters mótinu.

Haraldur Franklín náði lengst allra íslenskra karla þegar hann komst í 8 manna úrslit mótsins árið 2014.

Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir á þó bestan árangur allra, en hún komst í úrslit mótsins árið 2021.

Tómas, Dagbjartur, Veigar, Logi, Guðjón og Gunnlaugur.