Fréttir

Tumi og félagar í 9. sæti á Crusader Challenge
Tumi Hrafn Kúld.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
miðvikudaginn 18. september 2019 kl. 12:05

Tumi og félagar í 9. sæti á Crusader Challenge

Tumi Hrafn Kúld GA og félagar hans í Western Carolina skólanum kepptu á Crusader Collegiate mótinu sem er hluti af bandaríska háskólagolfinu dagana 16.-17. september.

Tumi lék best á lokahringnum þegar hann kom inn á höggi undir pari eftir að hafa leikið fyrstu tvo hringina á 79 og 78 höggum.

Tumi endaði í 51. sæti í einstaklingskeppninni en liðið hans endaði í 9. sæti af 15 liðum.

Hér er hægt að sjá lokastöðuna í mótinu.

Næsta mót hjá Western Carolina er JT Poston Inviational sem fer fram dagana 30. september - 1. október.