Tvöföldun í félagafjölda hjá GS á fjórum árum – 1.309 félagar og 26 milljóna hagnaður
Fjöldi félaga í Golfklúbbi Suðurnesja hefur meira en tvöfaldast á fjórum árum og eru þeir nú orðnir 1.309 talsins. GS er orðinn áttundi fjölmennasti golfklúbbur landsins og nam hagnaður af rekstri félagsins 26,2 milljónum króna á liðnu starfsári. Áfram verður unnið að uppbyggingu í Leiru og almenn félagsgjöld hækka um 3,5% á næsta ári.
Þetta kom fram á aðalfundi GS sem haldinn var í golfskálanum á Hólmsvelli miðvikudaginn 25. nóvember. Góð mæting var á fundinn en 88 félagsmenn sátu hann.
Félögum fjölgað um 693 á fjórum árum
Félögum í GS fjölgaði um 252 á árinu en í árslok 2022 voru þeir aðeins 616. Athygli vekur hversu mikil aukning hefur orðið í golfiðkun meðal íbúa Reykjanesbæjar. Alls eru 884 félagsmenn búsettir í sveitarfélaginu, eða um 68% félaga, og standa þeir undir 82,2% allra rástímaskráninga félagsmanna. Til að setja þessa þróun í samhengi voru rástímaskráningar á Hólmsvelli á bilinu 13.000–15.000 á ári á árunum 2022–2024, að gestum meðtöldum. Í ár eru þær rúmlega 16.500 hjá félagsmönnum búsettum í Reykjanesbæ einum og sér.
Rástímaskráningar á Hólmsvelli voru á bilinu 13–15 þúsund á ári á árunum 2022–2024, að gestum meðtöldum. Í ár voru þær rúmlega 16.500 hjá félagsmönnum búsettum í Reykjanesbæ einum og sér.
Sterk fjárhagsstaða – 92% eiginfjárhlutfall
Rekstrartekjur GS námu 165,7 milljónum króna og jukust um 10,6 milljónir milli ára. Hagnaður ársins var 26,2 milljónir króna samanborið við 14,1 milljón á síðasta ári. Afkoman var langt umfram fjárhagsáætlun sem gerði ráð fyrir 7,8 milljóna króna hagnaði.
Samanlagður hagnaður GS síðustu tveggja ára nemur rúmum 40 milljónum króna.
Helstu tölur úr ársreikningi GS:
- Rekstrartekjur: 165,7 milljónir kr.
- Rekstrarafkoma fyrir afskriftir og fjármagnsliði: 38,2 milljónir kr.
- Hagnaður: 26,2 milljónir kr.
- Handbært fé: 27,5 milljónir kr.
- Langtímaskuldir: 9,5 milljónir kr.
- Eigið fé: 282,8 milljónir kr.
- Eiginfjárhlutfall: 92%.
Stór áfangi náðist í desember á síðasta ári þegar Reykjanesbær afhenti GS golfskálann, aðstöðuhús og vélageymslu í Leiru. Afhendingin hefur styrkt efnahag félagsins verulega.
Milljón æfingaboltar og aukin róbótavæðing
Áfram verður fjárfest í búnaði og bættri aðstöðu í Leiru. Á síðustu tveimur árum hafa verið slegnir yfir milljón boltar á æfingasvæði GS. Á næsta ári verður fjárfest í nýrri boltavél sem tekur 20 þúsund bolta, nýjum æfingaboltum og rafknúnum vinnubíl.
Þrír Kress-slátturóbótar voru teknir í notkun á Hólmsvelli í sumar og stendur til að fjölga þeim á næsta ári auk þess að festa kaup á rafknúinni grínsláttuvél. Markmiðið er að draga úr eldsneytisnotkun og rekstrarkostnaði og nýta betur vinnutíma starfsmanna.
Breytt fyrirkomulag rástíma
Talsverðar umræður urðu á aðalfundinum um holuröðun Hólmsvallar. Fyrir fundinum lá tillaga fjögurra félagsmanna um að færa holuröðunina aftur í það horf sem hún var fyrir breytingarnar sumarið 2024. Að umræðum loknum dró Ásgeir Eiríksson, einn flutningsmanna tillögunnar, hana til baka. Taldi hann málið ekki eiga heima í lögum félagsins og lýsti yfir fullu trausti til stjórnar.
Á næsta ári verður ræsingu frá 1. og 10. holu víxlað með reglulegu millibili til að dreifa álagi betur um völlinn og auka fjölbreytni hjá þeim sem leika níu holur.
Þá verður kylfingum gert skylt að staðfesta mætingu á bókaðan rástíma. Stefnt er að opnun Hólmsvallar inn á sumarflatir á sumardaginn fyrsta, 22. apríl, eða fyrr ef aðstæður leyfa.
Árgjaldið verður 119 þúsund krónur
Aðalfundurinn samþykkti samhljóða hækkun almennra félagsgjalda um fjögur þúsund krónur, eða 3,5%. Árgjaldið verður því 119 þúsund krónur árið 2027. Áfram verður frítt fyrir börn 14 ára og yngri að leika Hólmsvöll.
Tvö GSÍ-mót verða haldin í Leiru á næsta ári, vormót GS dagana 29.–30. maí og Íslandsmót golfklúbba í 1. deild kvenna dagana 12.–14. ágúst. Frá aldamótum hefur GS haldið 72 GSÍ-mót, flest allra golfklúbba landsins.
Meistaramót GS verður haldið 7.–10. júlí og verður fyrirtækjamót félagsins endurvakið í maí.
Fjóla Margrét og Logi kylfingar ársins
Fjóla Margrét og Logi Sigurðsson voru á ný útnefnd kylfingar ársins hjá GS. Þá færðu GS-konur Fjólu Margréti 500 þúsund króna styrk til afreksstarfs hennar. Móðir Fjólu tók við styrknum fyrir hennar hönd þar sem hún er stödd erlendis.
Sveinn áfram formaður – óbreytt stjórn
Sveinn Björnsson var endurkjörinn formaður GS með lófataki. Guðrún Þorsteinsdóttir, Gunnar Ellert Geirsson og Vignir Elísson voru endurkjörin til tveggja ára. Fyrir í stjórn sitja Karitas Sigurvinsdóttir, Ragnar Olsen og Örn Ævar Hjartarson og verður stjórnin því óbreytt milli ára.



