Umdeild fleygjárn frá Ping bönnuð

Ping Eye 2 fleygjárnin hafa verið bönnuð á PGA-mótaröðinni. Kylfingar eins og Phil Mickelson hafa notað þessi fleygjárn sem voru lögleg, en um áramótin tóku í gildi nýjar reglur um að grópir skildu fara úr því að vera U-laga yfir í að vera meira í líkingu við að vera V-laga.
Ping Eye 2 kylfurnar voru löglegar því þær voru framleiddar fyrir árið 1990 og það nýttu sér nokkrir kylfingar, sem fengu þó mikla gagnrýni í sinn garð í staðinn. Lee Westwood sagði á sínum tíma að Mickelson væri að beygja reglurnar og Scott McCarron sagði hann svindla, en baðst svo afsökunar á þeim ummælum.
John Solheim, framkvæmdastjóri Ping sagði að fyrirtækið hefði ákveðið að fara í átt að því sem væri best fyrir golfið. „Þetta jafnar leikinn á PGA-mótaröðinni og kemur í veg fyrir óþægileg mál.“
Ástæðan fyrir því að grópum er breytt í járnum er til að kylfingar geti ekki framkallað jafn mikinn spuna á boltann og áður. Það kemur í veg fyrir að kylfingar geti slegið bolta úr þykkum karga en samt náð það miklum spuna að hægt sé að stjórna hvernig boltinn kemur niður á flötinni.
Mynd/golfsupport.nl: Phil Mickelson fékk á sig mikla gagnrýni fyrir að nota Ping Eye 2 fleygjárnin.
[email protected]


