Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Sunnudagur 8. febrúar 2009 kl. 16:02

Umferð golfbíla

32966_golfbill.jpgÉg held að fyrstu golfbílarnir hafi komið hingað til lands á miðjum níunda áratugnum. Skúli Ágústsson (oft nefndur Kennedy) vakti mikla athygli á þeim tíma fyrir að ferðast um völlinn á golfbíl. Þegar ég hóf störf hjá GR árið 1995 átti Sigurður Pétursson þáverandi golfkennari klúbbsins tvo golfbíla sem hann leigði út til félagsmanna. Umferð golfbíla um velli landsins hefur farið sívaxandi í góðærinu. Ekki bara það að flestir klúbbar eigi nú bíla sem þeir bjóða til útleigu, heldur hafa verið að myndast nokkur vandamál undanfarin ár, þar sem bílastæði við golfvellina gera ekki ráð fyrir að gestir séu með kerru aftaní til að flytja golfbílana sína á milli staða.

Þar fyrir utan valda golfbílar mun meiri skemmdum á golfvellinum heldur en t.d. golfkerrur. En um leið finnst mér þurfa að skipta þeim sem nota golfbíla í tvo flokka. Annars vegar þá sem verða að hafa bíl til að geta leikið golf og svo þá sem nota bíla af því þeir nenna ekki að ganga hringinn. Hér á landi vantar sárlega samræmdar reglur um hvernig eigi að haga umferð golfbíla. T.d. hversu nálægt flötum má keyra bílana, má leggja uppi á miðjum teig eða ekki. Ég hef stundum velt því fyrir mér ef það væru framleiddar kylfur sem hægt væri að nota úr ökumannssætinu hvort sumir golfbílanotendur myndu yfirhöfuð fara út úr bílnum. Þetta þarf að laga hér á landi. Einnig þarf að skoða ítarlega gjaldtöku fyrir notkun golfbíla á völlunum.

Þeir sem þekkja það að leika golf í Bandaríkjunum vita að þar fer kylfingur nánast ekki út á völl án þess að vera á golfbíl. Þeir sem sem koma á eigin bílum á völlinn þurfa að greiða svokallað „cart fee“.Nú í vikunni var Club Car, einn stærsti framleiðandi golfbíla í heiminum að kynna kerfi Guardian SVC (Satellite Vehicle Control). Kerfið er hannað til að vernda golfvelli og viðskiptavini þeirra, kylfingana. Með kerfinu er þannig hægt að takmarka aðgang bíla inná ákveðin svæði á golfvellinum, takmarka hraða þeirra sem og að fylgjast með notkun bílsins á vellinum. Þannig er t.d. hægt þegar umferð golfbíla er takmörkuð við notkun á stígum eingöngu, að stilla kerfið þannig að það drepst bílnum ef hann fer útaf stíg. Með þessu kerfi sjá bandarískir vallarstjórar fram á byltingu í hvernig umferð golfbíla verður háttað um vellina í framtíðinni.Þrátt fyrir að golfbílum hafi fjölgað gríðarlega hér á landi undanfarin ár erum við rétt að slíta barnsskónum í hvað varðar notkun þeirra á golfvöllunum. Það er samt alveg kominn tími á að við tökum föstum tökum á hvar megi keyra á völlunum og hvar ekki, því enginn golfvöllur á Íslandi hefur verið hannaður með umferð golfbíla í huga.

Með golfkveðju,Margeir Vilhjálmsson.