Fréttir

Valdís í 37. sæti í Taílandi
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
laugardaginn 22. júní 2019 kl. 10:30

Valdís í 37. sæti í Taílandi

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, lék í nótt þriðja hringinn á Ladies European Thailand meistaramótinu sem fer fram á Evrópumótaröð kvenna í golfi. Valdís lék þriðja hringinn á höggi undir pari og vann sig upp í 37. sæti.

Fyrir þriðja hringinn var Valdís á 3 höggum yfir pari eftir hringi upp á 72 og 75 högg. Hringurinn í nótt var því hennar besti í mótinu.

Áhugakylfingurinn Atthaya Thitikul er í forystu í mótinu á 17 höggum undir pari, 8 höggum á undan næstu kylfingum. 

Hér er hægt að sjá lokastöðuna í mótinu.