Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Valdís Þóra í sveit GL í Íslandsmóti golfklúbba
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Þriðjudagur 8. ágúst 2017 kl. 14:23

Valdís Þóra í sveit GL í Íslandsmóti golfklúbba

Íslandsmót golfklúbba fer fram dagana 11. til 13. ágúst. Sveitir Golfklúbbsins Leynis spila báðar í efstu deild þetta árið. 

Karlasveitin spilar í Kiðjabergi og kvennasveitin spilar á heimavelli og er gestgjafi þetta árið. Athygli vekur að atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir verður með sínu liði á heimavelli en hún hefur leikið á Evrópumótaröð kvenna á tímabilinu.

Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Valdís Þóra er ekki eini atvinnukylfingurinn sem er með í Íslandsmóti golfklúbba í ár en auk hennar eru þau Andri Þór Björnsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir öll með í sveitum GR.

Sveitir GL voru tilkynntar á dögunum en þær má sjá hér að neðan.

Kvennasveit GL

Arna Magnúsdóttir
Bára Valdís Ármannsdóttir
Elín Dröfn Valsdóttir
Friðmey Jónsdóttir
Hildur Magnúsdóttir
Hulda Birna Baldursdóttir
Kristín Vala Jónsdóttir
Valdís Þóra Jónsdóttir 

Karlasveit GL

Hannes Marinó Ellertsson
Helgi Dan Steinsson
Hróðmar Halldórsson
Kristvin Bjarnason
Stefán Orri Ólafsson
Þórður Emil Ólafsson
Willy Blumenstein

Liðstjóri Alexander Högnason

Ísak Jasonarson
[email protected]