Fréttir

Valdís Þóra keppir í Taílandi á Evrópumótaröðinni
Valdís Þóra Jónsdóttir.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
miðvikudaginn 19. júní 2019 kl. 10:30

Valdís Þóra keppir í Taílandi á Evrópumótaröðinni

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, hefur leik snemma á fimmtudaginn á Ladies European Thailand meistaramótinu sem er hluti af Evrópumótaröð kvenna í golfi.

Fyrir mótið er Valdís í 67. sæti á stigalista mótaraðarinnar eftir 9 mót á tímabilinu. Meðalskor hennar er 73,95 högg sem er 71. besti árangur allra á mótaröðinni.

Valdís hefur leik klukkan 12:50 að staðartíma á 10. teig eða klukkan 5:50 að íslenskum tíma. Hún verður í holli með þeim Sian Evans frá Englandi og heimakonunni Mookharin Ladgratok. 

Alls eru leiknir fjórir hringir í mótinu sem lýkur á sunnudaginn.

Hér verður hægt að fylgjast með skori keppenda í beinni.