Valtýr Björn er kylfingur vikunnar

Valtýr Björn Valtýsson, íþróttafréttamaður og stjórnandi útvarpsþáttarins Mín Skoðun á X-977, er kylfingur vikunnar að þessu sinni. Hann er tveggja barna faðir og er með 16,3 í forgjöf. Kylfingur.is fékk íþróttafréttamanninn geðþekka til að svara nokkrum skemmtilegum spurningum og golfið.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvers vegna?
„Það má segja með sanni að ég hafi byrjað í golfi um síðustu aldamót þegar ég skildi.“
Hefur þú verið í öðrum íþróttum?
„Já ég hef verið í fótbolta og fleiri greinum en þó aðallega í fótbolta og mitt lið er Fram.“
Hver eru helstu markmiðin?
„Ég held að ég sé með einhverja 16.3 í forgjöf eða þar um bil og markvmiðið er að komast undir 10. Ég veit þó ekki hvort það tekst í þessu lífi en við sjáum til.“
Helstu afrek í golfinu?
„Ég hef því miður ekki enn afrekað að fara holu í höggi en ég finn það á mér að það gæti gerst í sumar. Afrekin er sennilega ansi hreint fá á golfvellinum nema kannski þegar ég sló af teig á 13. braut á Hlíðarvelli í Mosó og hitti ‚ÓVART‘ Caterpillar gröfu sem var þarna í fjöruborðinu. Ég hitti beint í skófluna. Vel gert.“
Hvað er það neyðarlegasta sem komið hefur fyrir þig á golfvellinum?
„Það er nú sennilega þegar mér varð allt í einu illt í maganum á vellinum í Mosó og þurfti að komast á salernið STRAX. Ég brá á það ráð að banka uppá hjá fólki sem bjó við völlinn og þau voru ekkert annað en almennilegheitin.“
Ferðu í golfferð til útlanda í ár og ef þá hvert?
„Nei það geri ég ekki. Hef ekki ráð á því.“
Hvað ætlar þú að gera til að lækka forgjöfina næsta sumar?
„Ef ég ætla að lækka fogjöfina eitthvað þá verð ég að æfa mig meira. Það er eitthvað sem ég stefni að.“
Hver er þinn helsti styrkleiki og veikleiki í golfi?
„Styrkleiki. Veit ekki, kannski góða skapið. Um veikleika veit ég ekki enda myndi ég sennilega aldrei viðurkenna neinn veikleika eða þannig...hehehehe.“
Hver er uppáhalds kylfingurinn og af hverju?
„Ég held mikið uppá Magga Lár. Hann er frábær og líka skemmtilegur náungi. Ég hef alltaf verið aðdáandi Tiger Woods og það breytist ekki þó svo að hann hafi „aðeins“ misstigið sig í einkalífinu.“
Hvert er eftirlætisliðið í enska boltanum og hvers vegna?
„Ég á mér því miður ekkert uppáhaldslið í enska boltanum en hugsa þó alltaf hlýtt til West Ham og er það aðallega vegna systra minna sem halda mikið uppá það lið. Ég er mikill aðdáandi ítalska liðsins AC Milan. FORZA MILAN.“
Hver er frægasta persónan sem þú er með í símanum?
„Allir þeir rúmlega 600 sem eru í símanum mínum eru jafnfrægir. Þannig er það nú.“
Ertu hjátrúarfullur hvað varðar golf?
„Mjög svo. „
Hver er besti kylfingur landsins og hver er efnilegastur að þínu mati?
„Það eru margir góðir sem berjast um hituna sem besti kylfingur landsins og enn fleiri í yngri kantinum. Ég fylgist dálítið með unglingunum í Mosó og þar er verið að vinna flott unglingastarf.“
Hvað finnst þér skemmti- og leiðinlegast við golf?
„Það er allt skemmtilegt við golf. Ekkert leiðinlegt.“
Getur þú sagt okkur frá eftirminnilegri golfsögu af þínum golfferli?
„Ég er með eina góða frá því fyrir nokkrum árum að ég fór til Skotlands með Olla (Eyjólfi Bergþórssyni) vini mínum og félögum hans en þar var einn okkar í vandræðum með teighögg á fyrsta teig. Hann var fyrstu í ráshópnum og ræsirinn var búinn að kynna hann til leiks. Okkar maður virtist einhverra hluta vegna ekki sjá boltann mjög vel eða bara alls ekki þó svo að gleraugun væru til staðar. Hann kenndi nefnilega gleraugunum um og fór að pússa þau og ég veit ekki hvað. Við stóðum þarna einsog illa gerðir hlutir og biðum og vonuðum að hann hitti boltann. Okkur fannst hann hafa staðið þarna í heila eilífð með bleika driverinn sinn sem hann hafði keypt niðrí bæ. Hann hitti boltann, þótrúlegt en satt, sem fór alveg heila 30 metra. Þess ber að geta að okar maður kláraði ekki hringinn heldur hætti leik mjög snemma vegna sjóntruflana.“
Fylgist þú mikið með golfi?
„Já það geri ég.“
Staðreyndir:
Nafn: Valtýr Björn Valtýsson
Klúbbur: GKJ
Forgjöf: 16.3
Golfpokinn: NIKE
Golfskór: NIKE
Golfhanski: NIKE
Markmið í golfinu: Að komast undir 10 í forgjöf
Fyrirmynd: Tiger Woods (það er að segja sem golfari en ekki í einkalífinu)
Uppáhalds matur: Rjúpur
Uppáhalds drykkur: Vatn
Ég hlusta á: U2, Bubba, Diktu, Ourlives, Sálina og fleira. Er nánast alæta á tónlist.
Besti völlurinn: Þeir eru margir góðir en ég hlakka mikið til þegar Hlíðarvöllur verður 18 holu völlur.
Besta skor (hvar): Ef ég man rétt að þá hef ég spilað best á 84 eða 85. Skiptir ekki öllu máli.
Besta vefsíðan: Það eru margar flottar vefsíður í dag, í golfi og öðrum íþróttum.
Besta blaðið: Þarna er um svo mörg góða blöð að ræða að það væri ósanngjarnt að pikka eitthvert eitt út.
Besta bókin: Ég er þessa dagana að lesa bókina um Bono söngvara U2. Þetta er samtals bók sem er mjög áhugaverð lesning.
Besta bíómyndin: Margar góðar eins og Scarface, Taxi Driver, The Godfather og fleiri góðar. Heill hellingur.
Myndir/Kylfingur.is


