Watson kvaddi St. Andrews – Oosthuizen með fimm högga forystu
Það var ákaft klappað fyrir Tom Watson þegar hann lauk leik á St. Andrews vellinum í dag. Watson er að leika á sínu síðasta Opna breska á vellinum og var svo ekki langt frá því að slá öðru höggi sínu ofan í holuna á 18. holuna fyrir erni. Hann komast ekki í gegnum niðurskurðinn eftir að hafa leikið annan hringinn á 75 höggum og var tveimur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.
Það er hins vegar Louis Oosthuizen frá Suður-Afríku sem er efstur í mótinu á tólf höggum undir pari og hefur fimm högga forystu á Marl Calcaveccia sem kemur annar. Tiger Woods lék annan hringinn á 73 höggum eða einu höggi yfir pari og var ekki langt frá því að fara holu í höggi á 18. holunni sem er par-4 hola. Hann varð að sætta sig við fuglinn á þeirri holu og er í toppbaráttunni fyrir seinni helming mótsins.
Það er ekki hægt að segja annað en að gríðarleg vonbrigði hafi verið með frammistöðu Rory McIlroy í dag en hann lék á 80 höggum eða átta höggum yfir pari og féll niður úr efsta sætinu niður í 38. sæti. Kylfingar líkt og Ernie Els, Justin Rose, Angel Cabrera og Kenny Perry komust ekki í gegnum niðurskurðinn. Ekki náðu allir kylfingar að ljúka öðrum hring og gera það því í fyrramálið.