Wayne Westner fallinn frá
Kylfingurinn Wayne Westner svipti sig lífi í vikunni. Westner sigraði alls á tveimur mótum á Evrópumótaröðinni á ferlinum ásamt því að vinna Heimsbikarinn með Ernie Els árið 1996.
Talið er að Westner hafi skotið sjálfan sig í hausinn eftir að hafa haldið fjölskyldu sinni í gíslingu.
Westner var 55 ára gamall og einn þekktasti íþróttamaður Suður-Afríku. Meiðsli bundu enda á feril hans árið 1998.
Ernie Els minntist félaga síns á Twitter þegar fréttirnar hræðilegu birtust.
Sad day, our friend Wayne Westner passed today. Great memories thank you my friend.
— Ernie Els (@TheBig_Easy) January 4, 2017


