Öruggir teigtímar á Tene og nýir golfáfangastaðir hjá Evrópuferðum
„Fjöldi íslenskra kylfinga hefur aukist mikið á undanförnum árum og þeir eiga það flestir sameiginlegt að vilja lengja íslenska golfsumarið með því að fara í golf til heitari landa þegar veðrið býður ekki upp á golf útivið á Íslandi,“ segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar, en hún hefur sérhæft sig í golfferðum í sólina og hefur eftirspurnin aldrei verið meiri. „Við bjóðum upp á fjölmarga spennandi golfpakka þar sem sameinast glæsilegir golfvellir og gisting við allra hæfi.
Allir pakkarnir sem Evrópuferðir bjóða upp á eru með verð og gæði að leiðarljósi og eru með fjölbreytta golfpakka sem henta öllum getustigum kylfinga. „Við höfum verið dugleg að setja upp nýja pakka og taka aðra út sem ekki hafa staðist væntingar viðskiptavina okkar. Þannig að við erum stolt af því vöruframboði sem við erum með á heimasíðunni,“ segir Þráinn.
Öruggir teigtímar og flott gisting á Tene
Þar sem Tenerife er vinsæll vetrarstaður fyrir Íslendinga er tilvalið að fara þar í golf. Það getur gengið misvel að fá teigtíma á golfvöllum Tene en Evrópuferðir bjóða upp á fjóra frábæra kosti á eyjunni. Vinsælasti pakkinn á Tenerife hefur verið Las Madrigueras-hótelið sem er staðsett á amerísku ströndinni og samtengt Las Americas-golfvellinum sem er einn vinsælasti golfvöllur eyjunnar. Þráinn segir að einnig sé tilvalið fyrir þá sem vilja fara að sumri til að nýta þann möguleika, m.a. á Las Madrigueras og Las Américas. Þá sé verð lægra og enn fleiri möguleikar á teigtímum.
Boðið er upp á fleiri valkosti með fimm stjörnu hótelum sem eru við golfvelli. Buenavista er skemmtilegur golfvöllur með veglega gistingu og þá má einnig nefna lúxusíbúðir á Las Terrazas de Abama Golf og Hotel Suites Villa Maria á Golf Adeje.
Kylfingur.is átti kost á að gista á Las Madrigueras og leika golf á Las Americas vellinum. Hótelið er fimm stjörnu. Þar er allt til alls, mjög góður veitingastaður í skemmtilegu umhverfi, herbergin stór og góð og þá er í boði að fara í spa. Sólbaðsaðstaða er góð, hótelið er „adult only“ þannig að andrúmsloftið er rólegt og þægilegt. Stutt er í meira fjör á eyjunni, t.d. til að sækja aðra veitingastaði og leigubílaþjónustan er til fyrirmyndar og ódýr.
Teigtímar sem Evrópuferðir bjóða eru á morgnana frá klukkan níu til ellefu sem er mikill kostur. Golfbíll er innifalinn og kylfingar fara akandi frá neðstu hæðinni og út á golfvöllinn og heim á hótel eftir golf sem er mjög þægilegt. Las Americas er mjög góður golfvöllur, fjölbreyttar brautir og vinnur mikið á við hverja umferð. Leikhraði er hæfilegur og algengt að 18 holu hringur taki rúmar fjórar klukkustundir. Eftir golf er tilvalið að skella sér í klúbbhúsið og snæða hádegisverð eða bara fá sér drykk. Svo bíður sundlaugin og sólbaðsaðstaðan sem er tilvalið að nota eftir golfið.
„Teigtímar sem Evrópuferðir bjóða eru á morgnana frá klukkan níu til ellefu sem er mikill kostur. Golfbíll er innifalinn og kylfingar fara akandi frá neðstu hæðinni og út á golfvöllinn og heim á hótel eftir golf sem er mjög þægilegt. Las Americas er mjög góður golfvöllur, fjölbreyttar brautir og vinnur mikið á við hverja umferð. Leikhraði er hæfilegur og algengt að 18 holu hringur taki rúmar fjórar klukkustundir“
Vatn kemur talsvert við sögu á Las Americas.
Tíundi teigur á Las Americas og klúbbhúsið en þar er gott að líta við eftir golf í snarl eða drykk, í klúbbhúsinu er líka fínasta golfverslun.
Það er ljúft að njóta morgun- og eða kvöldverðar á veröndinni á veitingastað hótelsins, Las Madrigueras. Séð inn í inngang hótelsins á myndinni hér að neðan.
Gran Canaria
Gran Canaria, eða Kanaríeyjar, njóta sívaxandi vinsælda sem golfparadís en þar er svipað hitastig og veður og á Tene „Við bjóðum upp á ferðir þangað í febrúar, mars og apríl en þær ferðir seldust allar upp fljótlega. Núna er komið í sölu tímabilið október fram í apríl 2027.
Boðið er upp á fimm glæsileg hótel, eitt fjögurra og fjögur fimm stjörnu. „Þetta eru hótelin Lopesan C. Meloneras Golf, Kumara by Lopesan, Lopesan Villa del Conde, Hotel Faro Lopesan Collection og Lopesan Baobab Golf. Flest hótelin eru staðsett við ströndina og í göngufæri við marga góða veitingastaði.
Boðið er upp á pakka í 7 til 21 nótt og eru golfvellirnir Meloneras Golf og Maspalomas Golf stutt frá hótelunum, í um fimm mínútna akstursfjarlægð. Auk þess er þriðji völlurinn, Anfi Tauro Golf, í um 25 mínútna akstursfjarlægð frá hótelunum. Boðið er upp á endurgjaldslausar ferðir til og frá golfvöllunum frá hótelunum.“
Öll hótelin fimm bjóða upp á úrval veitingastaða og ýmiss konar afþreying er í boði, t.d. líkamsrækt, sundlaugar, heilsulindir, tennis- og padelvellir og kvölddagskrá.
Costa del Sol og Alicante
Spánn er líka vinsæll áfangastaður fyrir sólþyrsta golfáhugamenn og bjóða Evrópuferðir upp pakka til Costa del Sol og Alicante. „Icelandair hóf beint flug til Costa del Sol í september á síðasta ári og er að fljúga þangað allt árið. Við bjóðum upp á frábær fjögurra og fimm stjörnu hótel, þar á meðal fyrsta Fairmont hótelið á Spáni sem opnaði árið 2025 en í þeim pakka er spilað á tveimur frábærum 18 holu golfvöllum. Hin hótelin eru Villa Padierna Palace, La Cala Golf Resort og SO/ Sotogrande Resort. Í pökkunum er boðið upp á einn til þrjá golfvelli sem eru í nágrenni hótelanna og bjóðum við upp á ferðir þangað allt árið.“
Einnig er boðið upp á glæsilegt fimm stjörnu hótel í Alicante sem heitir La Finca Resort. „Þetta er sannkallað lúxushótel sem er staðsett skammt frá Alicante-borg. Hótelið er þekkt fyrir rólega stemningu, nútímalega hönnun og frábæran golfvöll sem er við hliðina á hótelinu.“
Algarve og Lissabon
Portúgal er líka skemmtileg golfparadís, var mjög vinsæl hjá íslenskum kylfingum á árum áður og er að koma aftur mjög sterk inn. Evrópuferðir bjóða upp á golfferðir til Algarve og Lissabon. „Í Algarve bjóðum við upp á pakka í apríl og maí og svo aftur í september og október. Þar er hægt að velja á milli þriggja glæsilegra fjögurra og fimm stjörnu hótela, Pestana Vila Sol Golf, Hyatt Regency Vilamoura og Amendoeira Golf Resort. Flogið er með Icelandair og er hægt að velja um 7 til 14 daga ferðir.“
Lissabon er höfuðborg Portúgals og stærsta borg landsins. Í nágrenni hennar má finna fjölda glæsilegra golfvalla. Evrópuferðir bjóða upp á spennandi golfpakka til Lissabon allt árið. „Við bjóðum upp á þrjú fimm stjörnu hótel í Lissabon þar sem golfarar fá að spila fimm hringi á sjö dögum.“
Um er að ræða hótelin Marriott Praia D'EI Rey sem stendur við hinn fræga Praia D’El Rey golfvöll, Palacio Estoril Hotel sem er staðsett við hliðina á Estoril Golf og Onyria Quinta da Marinha Cascais en við hlið hótelsins er Quinta da Marinha-völlurinn sem er með stórbrotið útsýni yfir Atlantshafið og Sintra-fjöllin. „Lissabon er að koma mjög sterkt inn hjá okkur, enda erum við með frábæra pakka á góðum verðum. Palacio Estoril er staðsett í bænum Estoril sem er stutt frá Lissabon og í stuttu göngufæri frá strönd og veitingastöðum. Það er einnig stuttur göngutúr frá hótelinu að lestarstöð þar sem hægt er að taka lest sem stoppar í miðbæ Lissabon og tekur um 30 mínútur. Þannig hefur fólk verið að sameina borgar-, strandar- og golfferð í einum pakka,“ segir Þráinn.
Nánari upplýsingar má finna á vef Evrópuferða.
Estoril Golf, par 69 – fallegur og krefjandi völlur í gróðursælu landslagi með útsýni yfir Atlantshafið

La Hacienda Links Golf. Einn af fáum ekta strandgolfvöllum á Costa del Sol, með stórbrotnu útsýni yfir hafið og Gíbraltar.







