Tvö slæm högg í lokin kostuðu Lawry 120 millj. kr.
Mistök á golfvellinum kosta mismikið en þau geta reynst mjög dýr hjá atvinnukylfingum. Írinn Shane Lawry sló tvö slæm golfhögg á 16. og 17. holu í lokahringnum á PGA móti um síðustu helgi. Tvö högg sem enduðu í vatnstorfærunum kostuðu hann eina milljón dollara eða rúmlega 120 milljónir króna.
Lawry var með þriggja högga forskot þegar hann stóð á 16. teig. Hann var búinn að leika mjög gott golf í lokahringnum og var sjóðheitur á síðustu níu holunum. Hann lék m.a. 10.-15. holu á fjórum undir pari og allt stefndi í fyrsta sigur hans í sjö ár á PGA mótaröðinni. Fjögurra ára dóttir og fjölskylda voru meðal áhorfenda. En allt kom fyrir ekki. Upphafshöggið á 16. braut fór til hægri í vatnstorfæru, næsta högg fór í glompu og hann rétt bjargaði tvöföldum skolla með einpútti. Hann var enn í forystu og sigurinn var ekki farinn. Á 17. holu fékk hans helsti keppinautur, Nico Echavarria, fugl á par 3 holunni. Þeir voru þá orðnir jafnir. Upphafshögg Írans endaði í vatni og niðurstaðan annar tvöfaldur skolli. Hann þurfti örn á síðustu holu til að komast í bráðbana en það gerðist ekki.
Niðurstaðan jafn í 2. sæti, um 90 millj. kr. verðlaunafék en milljón dollarar aukalega sem hann hefði fengið fyrir sigurinn fuku út um gluggann, rúmlega 120 milljónir króna. Nokkrar tugir milljóna fuku líka í móti fyrir mánuði síðan.
Bankastjóri Lawry’s fagnaði ekki.
„Ég get ekki gert annað en að halda áfram. Mig langaði svo mikið að vinna mótið fyrir framan fjögurra ára dóttur mína en það gerðist ekki og ég verð að sætta mig við það, sagði Lawry og ræddi ekki peningatapið.


