Kylfingur dagsins

Ruth í Góða hirðinum er góður kylfingur sem hefur farið holu í höggi
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
föstudaginn 8. desember 2023 kl. 07:00

Ruth í Góða hirðinum er góður kylfingur sem hefur farið holu í höggi

Kylfingur dagsins er rekstarstjóri Góða hirðsins, hefur gaman að öllum íþróttum, útiveru og samskiptum við fólk, þ.a.l. er golfíþróttin kjörin fyrir Ruth Einarsdóttur en hún er í golfklúbbum Leyni á Akranesi.

Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?

Ég byrjaði í golfi 2012. Foreldrar mínir voru búnir að vera lengi í golfi og höfðu mikið reynt að draga mig inn í þessa íþrótt. Mér fannst þetta nú vera eitthvað sem gamalt fólk stundaði en svo kolféll ég fyrir þessu.

Helstu afrek í golfinu?

Hola í höggi á 10. á Hvaleyravelli og 3. sæti í Íslandsmóti golfklúbba 50+ í 1. deild með sveit Leynis.

Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?

Leika rangri kúlu.

Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?

Úff þeir eru nú nokkrir “frægir”,  Þórdís Geirsdóttir, bræðurnir Þorsteinn og Júlíus Hallgrímsson. Ég verð líka að nefna hann Guðlaug Rafnsson.

Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf?

Nei bara alls ekki, aldrei verið hjátrúarfull þegar kemur að íþróttum.

Hvað er það sem þú þarft mest að bæta í þínum golfleik?

Einbeitingu og aga til að æfa.

Aldur: 51

Klúbbur: Leynir

Forgjöf: 11.1

Uppáhaldsmatur: Smorebrod með rauðsprettu

Uppáhaldsdrykkur: Grænn Kristall

Uppáhaldskylfingur: Bogi Molby Péturson... Hann er svo skemmtilegur.

Þrír uppáhaldsgolfvellir: Garðavöllur, Korpan (sjórinn/áin) og Las Ramblas.

Þrjár uppáhaldsgolfbrautir á Íslandi: 1, 2 og 3 á Garðavelli.

Erfiðasta golfholan: 9 á Garðavelli, getur verið mjög erfitt að skora hana.

Erfiðasta höggið: Bunker högg, ótrúlegt hvað það getur farið í hausinn á manni.

Ég hlusta á: Hljóðbækur

Besta skor: 76 högg

Besti kylfingurinn: Viktor Hovland

Golfpokinn

Dræver: Bridgestone JGR

Brautartré: Bridgestone JGR

Járn: Cobra RADSPEED

Fleygjárn: Calaway

Pútter: Evenroll ER2V

Hanski: Footjoy StaSof leður hanski

Skór: Nike Air Max 270

Ruth með driver-inn. Myndina tók Sigurður Elvar Þórólfsson

Draumahöggið á Garðavelli Á Akranesi.