Örninn 2026
Örninn 2026

Viðtal

Garðavöllur allur að koma til eftir erfiðan vetur
Rakel Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis á Akranesi.
Laugardagur 10. júní 2023 kl. 11:31

Garðavöllur allur að koma til eftir erfiðan vetur

„Við eins og líklega allir aðrir vellir á Íslandi, höfum ekki farið varhluta af erfiðum vetri og völlurinn okkar sem við venjulega opnum í lok apríl, var ekki tilbúinn fyrr en upp úr miðjum maí,“ segir Rakel Óskarsdóttirk framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis á Akranesi.

Golfklúbburinn Leynir á Akranesi var stofnaður árið 1965 en golfvöllurinn þeirra, Garðavöllur hefur lengi talist til bestu golfvalla landsins og hefur Íslandsmótið oft verið haldið á vellinum. Skagamenn skoruðu ekki bara mörkin, margir frábærir kylfingar hafa komið þar upp, t.d. sigursælasti karlkylfingur í sögu golfs á Íslandi, Birgir Leifur Hafþórsson en hann hefur sex sinnum hampað titlinum. Þá hefur Valdís Þóra Jónsdóttir þrisvar sinnum tekið þann stóra og Þórður Emil Ólafsson einu sinni. Í dag eru meðlimir um 630 og gerir Rakel Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri klúbbsins ráð fyrir að fjöldinn fari yfir 700 í sumar.

Rakel verður tíðrætt um veturinn sem var mörgum erfiður. „Við ætluðum okkur að halda GSÍ mót um daginn en urðum að falla frá því þar sem völlurinn var það blautur að við mátum hann ekki leikhæfan. Ég lét það verða eitt mitt fyrsta verk þegar ég tók við sem framkvæmdastjóri klúbbsins í byrjun árs 2020, að fjárfesta í gröfu svo við gætum drenað völlinn betur. Völlurinn hefur verið verulega blautur í sér á vorin en með þessu höfum við getað komið honum fyrr í stand en eins og ég segi, þessi vetur var ansi erfiður en völlurinn er allur að koma til núna.“

Fjölgun í klúbbum og fjaraðild

Rakel gerir ráð fyrir fjölgun í sumar. „Það eru um 630 meðlimir í dag en það búa um átta þúsund manns á Akranesi. Ég held að það sé mikill meðbyr með okkur, við tókum nýtt klúbbhús í notkun árið 2019 sem er með þeim glæsilegri á landinu að okkar mati. Ég geri ráð fyrir að við förum yfir 700 félagsmenn í sumar og þeim fjölgar líka alltaf sem kaupa fjaraðild hjá okkur en það tekur ekki langan tíma að skjótast úr höfuðborginni upp á Skaga, 40 mín +/-. Ég á því von á að sumarið verði pakkað hjá okkur en við erum með u.þ.b. tvö hundruð spilaða hringi þessa dagana og sumarið er nú ekki beint komið, það er ansi kalt ennþá svo þegar hlýnar geri ég ráð fyrir að það verði nóg um að vera hjá okkur,“ segir Rakel.

Líflegt mótahald

Leynir heldur mörg mót, bæði lokuð innanfélgasmót og opin mót. „Við erum alltaf með mót á miðvikudögum, stigamót eins og flestir ef ekki allir klúbbar eru með. Það er alltaf góð mæting í þau mót og þær eru ekki margar helgarnar sem detta út sem við erum ekki með opin mót. Við vorum t.d. með hjóna- og paramót um síðustu helgi og það var uppselt í það, erum svo með kvennamót um næstu helgi og skráning gengur mjög vel vel yfir 100 konur skráðar. Svona gæti ég lengi haldið áfram. Rúsínan í pylsuendanum er síðan alltaf meistaramótið, það er eins og jólin finnst mörgum kylfingum, ég get varla beðið eftir því og þótt ég sé á útopnu frá morgni til kvölds alla mótsdagana get ég ekki sleppt því að spila sjálf. Það er alltaf mikil stemning hjá klúbbmeðlimum yfir því og má segja að það sé fullt skráning í mótið en við spilum það á fimm dögum, frá þriðjudegi til laugardags. Hugsanlega þurfum við að fjölga dögunum í sex og taka mánudaginn inn í en með auknum fjölda meðlima þyrfti það ekki að koma á óvart.“

Fyrstu höggin í Sandgerði

Rakel er frá Sandgerði og hóf sína golfiðkun þar. „Ég er fædd og uppalin í Sandgerði og byrjaði að leika mér í golfi þar. Flæktist um allt með pabba og spilaði eitthvað en ég æfði aldrei golf þannig séð, var því ekki í neinu keppnisgolfi. Svo hætti ég og var bara í fótboltanum, kynntist manninum mínum sem er frá Akranesi og flutti þangað en skráði mig svo í klúbbinn fyrir sjö árum og byrjaði aftur og sé ekki eftir því. Við hjónin erum í golfhópi með sjö öðrum hjónum, sá hópur spilar nokkuð mikið saman. Ég reyni að komast hið minnsta tvisvar sinnum í viku en ég nýt góðs af því að búa í tveggja mínútna göngufjarlægð frá vellinum svo það kemur oft fyrir að ég og maðurinn skjótumst níu holur eftir kvöldmat ef það er laust. Ég reyni að spila eins og ég get. Það er auðvitað nóg að gera í að reka klúbbinn en ég er með mjög gott starfslið en í dag erum við fjögur sem erum í heilsársstarfi. Á sumrin bætast svo u.þ.b. tuttugu við en klúbburinn hefur alltaf notið góðs stuðnings Akraneskaupstaðar og fyrir það erum við mjög þakklát,“ sagði Rakel að lokum.