Fréttir

Aðalfundur GR: Elvar Már hlaut háttvísisbikarinn 2018
Elvar Már Kristinsson og Björn Víglundsson. Mynd: grgolf.is
Miðvikudagur 5. desember 2018 kl. 16:09

Aðalfundur GR: Elvar Már hlaut háttvísisbikarinn 2018

Elvar Már Kristinsson hlaut háttvísisikarinn á aðalfundi GR sem fór fram 4. desember á Korpúlfsstaðavelli.

Háttvísibikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig.

Á heimasíðu GR er farið fögrum orðum um Elvar Má:

„Elvar Már hlýtur viðurkenninguna í ár. Elvar hafnaði í öðru sæti á lokamóti Íslandsbankamótaraðarinnar. Elvar er mikil fyrirmynd fyrir aðra iðkendur, bæði innanvallar sem utan. Hann er mjög duglegur við æfingar og hefur sýnt jafnar og góðar framfarir seinustu árin.“

Þetta er í 15 skipti sem bikarinn er afhentur en þeir sem hafa áður fengið útnefninguna eru eftirfarandi kylfingar:

2004 Þórður Rafn Gissurarson
2005 Hanna Lilja Sigurðardóttir
2006 Guðni Fannar Carrico
2007 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
2008 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
2009 Andri Þór Björnsson
2010 Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2011 Sunna Víðisdóttir
2012 Ragnhildur Kristinsdóttir
2013 Saga Traustadóttir
2014 Ingvar Andri Magnússon
2015 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir
2016 Dagbjartur Sigurbrandsson
2017 Böðvar Bragi Pálsson

Ísak Jasonarson
[email protected]