Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Andrés ráðinn til GKG
Andrés Davíðsson.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 22. október 2019 kl. 13:35

Andrés ráðinn til GKG

Andrés Jón Davíðsson hefur verið ráðinn til starfa hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og hefur störf um áramótin en þetta kemur fram á heimasíðu klúbbsins. Andrés mun gegna stöðu barna- og unglingaþjálfara, en mun auk þess sinna almenningskennslu og námskeiðum.

Sjá meðfylgjandi texta úr tilkynningu frá GKG:

„Andrés er viðskipta og markaðfræðingur að mennt, hann útskrifaðist sem golfkennari frá PGA í Noregi árið 2000 og starfaði lengi í Þýskalandi sem yfirgolfkennari hjá GC Emstal í Lingen. Andrés kláraði meistaranám í Íþróttafræði frá Háskólanum í Reykjavík 2014 og er fyrstur Íslendinga til að hljóta titilinn „Master Professional“ en til þess að öðlast þann titil þarf meðal annars að hafa 10 ára reynslu frá útskrift PGA náms auk þess að ljúka viðurkenndu meistaranámi með áherslu á efni sem tengist og nýtist golfhreyfingunni.

Andrés hefur verið sjálfstætt starfandi golfkennari undanfarin ár og þjálfað og kennt hinnum almenna kylfing ásamt því að þjálfa nokkra af efnilegustu og bestu kylfinga landsins, s.s. GKG kylfingana Birgi Leif Hafþórsson, bræðurna Ragnar Má og Sigurð Arnar Garðarsson, Kristófer Orra Þórðarson, Fannar Inga Steingrímsson og Ingunni Einarsdóttur.“


Mynd: gkg.is