Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Andri Már reyndi fyrir sér á úrtökumóti í Frakklandi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 6. október 2022 kl. 16:04

Andri Már reyndi fyrir sér á úrtökumóti í Frakklandi

Andri Már Óskarsson úr Golfklúbbi Hellu reyndi fyrir sér í fyrsta skipti á úrtökumóti fyrir DP Evrópumótaröðina í golfi en komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Andri lék á Golf d’Hardelot golfvellinum í Frakklandi og endaði á sjö höggum yfir pari og var í 83. sæti.

„Þetta var bara gaman og aldrei að vita að maður reyni aftur á næsta ári,“ sagði Andri í spjalli við kylfing.is að loknum þriðja hring á mótinu. 

Andri lék fyrsta hringinn á 73 höggum, annan á 76 og þriðja hringinn á einu höggi undir pari eða 70 höggum. 

Örninn 2025
Örninn 2025

„Þetta byrjaði ágætlega en ég fékk vott af matareitrun fyrir annan hringinn og gat því ekki borðað áður en ég fór út á golfvöll, lék þá á +5. Lék mjög vel síðasta hringinn. Þetta var góð reynsla og ég gæti alveg hugsað mér að reyna aftur.“

Eitthvað sérstakt sem þú tekur út úr þessari þátttöku. Hvað vantaði upp á til að komast lengra?

„Þetta er alltaf spurning um stutta spilið. Það skiptir svo miklu máli. Þá var pútterinn ekki mjög heitur,“ sagði Andri Már Óskarsson.

Andri Már á teig í Frakklandi.