Anna Sólveig fór holu í höggi á Bose mótinu

Anna Sólveig Snorradóttir, GK, fór holu í höggi á Bose mótinu sem fór fram á Eimskipsmótaröðinni um helgina. Anna Sólveig náði draumahögginu á 11. holu á Jaðarsvelli á fyrsta hringnum sem var leikinn á laugardaginn.
Anna Sólveig lék vel í mótinu en hún endaði að lokum í öðru sæti, fjórum höggum á eftir klúbbfélaga sínum Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur sem stóð uppi sem sigurvegari.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið í sumar sem Anna Sólveig fer holu í höggi í sterku móti en hún náði einnig draumahögginu á EM landsliða í Portúgal í sumar.
Sjá einnig:
Anna Sólveig fór holu í höggi á fyrsta hringnum á EM landsliða


