Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

Axel endaði í 13. sæti á Borre Open
Axel Bóasson.
Fimmtudagur 22. júní 2017 kl. 13:09

Axel endaði í 13. sæti á Borre Open

Lokahringur Borre Open mótsins fór fram í dag á Nordic Golf mótaröðinni. Andri Þór Björnsson og Axel Bóasson komust báðir í gegnum niðurskurðinn í mótinu og voru því í eldlínunni.

Axel var í öðru sæti fyrir lokahringinn á 8 höggum undir pari. Hann lék lokahringinn á pari vallarins eða 73 höggum og féll niður um nokkur sæti. Axel endaði mótið í 13. sæti og fer að öllum líkindum eitthvað upp á stigalistanum en hann var í 8. sæti fyrir mótið.

Örninn 2025
Örninn 2025

Andri Þór náði sér ekki alveg á strik á lokahringnum eftir flottan annan hring. Hann lék á 5 höggum yfir pari í dag og endaði mótið á 3 höggum yfir pari. Sú spilamennska skilaði honum í 40. sæti í mótinu.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Haraldur Franklín Magnús og Ólafur Björn voru einnig meðal keppenda í mótinu. Þeir komust hins vegar ekki í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi.

Hér er hægt að sjá lokastöðuna.

Ísak Jasonarson
[email protected]