Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Axel góður í Svíþjóð
Axel Bóasson
Föstudagur 20. maí 2016 kl. 19:10

Axel góður í Svíþjóð

Axel Bóasson, atvinnumaður úr GK, hefur lokið við tvo hringi á Fjallbacka Open mótinu sem er partur af Nordic Golf League. Hringina tvo hefur Axel leikið samtals á þremur höggum undir pari sem skilar honum í 18. sæti.

Eftir hringinn í dag var niðurskurður en 45 efstu kylfingarnir komust áfram. Okkar maður komst örugglega í gegnum niðurskurðinn og leikur síðasta hring mótsins á morgun. Axel byrjaði gríðarlega vel í mótinu og eftir 10 holur var hann á 6 höggum undir pari. Hann lék einnig vel á öðrum hringnum en tvöfaldur skolli á 16. holu kom honum niður á parið.

Þriðji og síðasti hringur mótsins fer fram á morgun og á Axel rástíma kl. 9:39 á sænskum tíma. Hér verður hægt að fylgjast með mótinu.