Benedikt og Atli sigruðu á 1. maí fiskimótinu á Kirkjubólsvelli
Benedikt Gunnarsson sigraði á 1. maí fiskimótinu sem fram fór á Kirkjubólsvelli í Sandgerði í gær. Alls tóku 60 kylfingar þátt og fékk Benedikt, sem er úr GSG, 39 punkta. Atli Már Grétarsson úr GK sigraði í höggleikskeppninni á 75 höggum eða þremur höggum yfir pari vallar.
Sigurður Vignir Halldórsson úr GSG varð annar á 38 punktum og Valur Rúnar Ármannsson einnig úr GSG varð þriðji á 38 punktum líkt og Einar S Guðmundsson úr GSG.


