Bestu kylfingar landsins mæta í Einvígið á Nesinu
Margir af bestu kylfingum landsins mæta í Einvígið á Nesinu sem verður haldið í tuttugasta og níunda skipti. Mótið er haldið í samstarfi við Arion banka og fer sem fyrr fram á frídegi verslunarmanna, sem ber að þessu sinni upp á mánudaginn 4. ágúst.
Venju samkvæmt hefur nokkrum af bestu kylfingum landsins verið boðið til leiks og leika þau í þágu Minningarsjóðs Bryndísar Klöru. Tilgangur og markmið sjóðsins er að styðja við almannaheillaverkefni sem miða að því að vernda börn gegn ofbeldi og efla samfélag þar sem samkennd og samvinna eru höfð í forgrunni.
Einvígið hefst stundvíslega kl. 13.00. Fyrirkomulagið er með því sniði að sá fellur úr leik á fyrstu braut sem er fjærst holu eftir þrjú högg og tvö högg á annarri braut. Eftir það verður farið í hið hefðbundna „shoot-out“ þar sem sá sem er með hæsta skor á viðkomandi braut fellur úr leik.
Golfáhugafólk er velkomið að koma og fylgjast mörgum af okkar bestu kylfingum í árlegu móti.
Það er Arion banki sem er styrktaraðili Einvígisins á Nesinu í ár. Í mótslok afhenda fulltrúar bankans forsvarsaðila Styrktarsjóðs Bryndísar Klöru ávísun upp á eina milljón króna.
Þátttakendur í Einvíginu á Nesinu 2025:
Aron Snær Júlíusson, GKG
Axel Bóasson, GK
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK
Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
Heiðar Steinn Gíslason, NK
Haraldur Franklín Magnús, GR
Hulda Clara Gestsdóttir, GKG
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GKG
Tómas Eiríksson Hjaltested, GR
Sigurvegarar frá upphafi:
2024 Dagbjartur Sigurbrandsson
2023 Birgir Björn Magnússon
2022 Bjarni Þór Lúðvíksson
2021 Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2020 Haraldur Franklín Magnús
2019 Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2018 Ragnhildur Sigurðardóttir
2017 Kristján Þór Einarsson
2016 Oddur Óli Jónasson
2015 Aron Snær Júlíusson
2014 Kristján Þór Einarsson
2013 Birgir Leifur Hafþórsson
2012 Þórður Rafn Gissurarson
2011 Nökkvi Gunnarsson
2010 Birgir Leifur Hafþórsson
2009 Björgvin Sigurbergsson
2008 Heiðar Davíð Bragason
2007 Sigurpáll Geir Sveinsson
2006 Magnús Lárusson
2005 Magnús Lárusson
2004 Magnús Lárusson
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir
2002 Ólafur Már Sigurðsson
2001 Björgvin Sigurbergsson
2000 Kristinn Árnason
1999 Vilhjálmur Ingibergsson
1998 Ólöf María Jónsdóttir
1997 Björgvin Þorsteinsson