Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Kristófer Karl klúbbmeistari eftir umspil - Arna Rún meistari kvenna
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 14. júlí 2026 kl. 10:37

Kristófer Karl klúbbmeistari eftir umspil - Arna Rún meistari kvenna

Það var metfjöldi kylfinga sem tók þátt í meistaramóti Golfklúbbs Mosfellsbæjar eða um 450 kylfingar. Það var mikil spenna í mörgum flokkum. Kristórfer Karl Karlsson og Arna Rún Kristjánsdóttir urðu klúbbmeistarar 2026.

Mest var spennan í meistaraflokki karla þar sem þeir Kristófer Karl og Kristján Þór Einarsson fóru í þriggja holu umspil um sigurinn. Þar setti Kristófer niður gott þriggja metra pútt á 18. braut (þriðju holu umspilsins) og tryggði sér sigurinn. Þeir léku báðir á 277 höggum.

Mfl. kvenna

1. sæti – Arna Rún Kristjánsdóttir. 301 högg

2. sæti – Heiða Rakel Rafnsdóttir. – 311 högg

3. sæti – Sara Kristinsdóttir. 313 högg

Mfl karla

1. sæti - Kristórfer Karl Karlsson. 277 högg eftir umspil

2. sæti Kristján Þór Einarsson

3. sæti Sverrir Haraldsson. 289 högg.

1. flokkur karla.

1. sæti - Hilmir Ægisson. 311 högg

2. sæti – Tryggvi Haraldur Georgsson. 312 högg

3. sæti – Emil Darri Birgisson. 316 högg

1. flokkur kvenna

1. sæti – Arna Kristín Hilmarsdóttir. 355 högg

2. sæti – Eydís Arna Róbertsdóttir. 356 högg

3. sæti – Sara Jónsdóttir.  359 högg.

2 . flokkur karla.

1. sæti – Ásbjörn Björgvinsson. 329 högg

2. sæti – Vignir Þór Birgisson. 331 högg (betri síðustu 36)

3. sæti – Daníel Heiðar Líndal. 331 högg

2. flokkur kvenna.

1. sæti – Andrea Jónsdóttir. 354 högg

2. sæti – Lena Ýr Sveinbjörnsdóttir. 373 högg

3. sæti – Helga Ívarsdóttir. 376 högg (Betri á síðustu 36)

Hér má svo sjá hverjir unnu til verðlauna fyrir að vera næst holu.

Hlíðavöllur:

27. júní - Sigríður María Torfadóttir - 115 cm.

28. júní - Kristján Kristjánsson - 88 cm.

29. júní - Bjarki Þorláksson - 2,5 metrar.

30. júní - Aron Daníelsson. 1,84 metrar.

1. júlí - Einar Helgi Jónsson - hola í höggi!!

2. júlí -  Aron Sölvi Kristinsson - 39 cm.

3. júlí - Björn Andri - 1,47 metrar.

4. júlí - Einar Helgi Jónsson. 73 cm.

Bakkakot:

28. júní - Ásmundur Ólafsson- 50 cm.

29. júní - Albert Sigtryggsson - 43 cm.

30. júní - Laila Ingvarsdóttir - 43 cm.

  1. júlí - Matthildur Óskarsdóttir - 1,37 metrar.
  2. júlí - Aníta Pálsdóttir. - 49 cm.
  3. júlí - Vilhjálmur Hallgrímsson - 1,99 metrar.