Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

OPNA mótið í fyrsta skipti utan Bretlands? - hvaða vellir hýsa mótið?
Portmarnock í Dublin á Írlandi.
Fimmtudagur 16. júlí 2026 kl. 12:31

OPNA mótið í fyrsta skipti utan Bretlands? - hvaða vellir hýsa mótið?

Vonir um að Portmarnock-golfklúbburinn í Írlandi verði fyrsti klúbburinn utan Bretlands til að halda Opna breska meistaramótið, The Open, virðast vera á réttri leið eftir að Mark Darbon, framkvæmdastjóri R&A, sagði að stjórnendur væru fullvissir um að völlurinn í norðurhluta Dyflinnar gæti hýst mót af stærðargráðu Opna breska.

Mótið hefur í mörg undanfarin r verið haldið á tíu golfvöllum sem allir eru links - eða strandvellir og róterast á milli þeirra, þó þannig að mótið er haldið á fimm ára fresti á Gamla vellinum, The Old Course í St. Andrews en þar verður það haldið á næsta ári, 2027.

Hér er að neðan er listi yfir velli sem hafa hýst mótið undanfarna áratugi. Eftir að Donald Trump eignaðist Turnberry völlinn í Skotlandi 2014, hefur mótið ekki verið haldið á vellinum og stendur ekki til í náinni framtíð. Portmarnoch í Írlandi gæti því orðið tíundi á listanum sem er á „OPEN rota“, sem við getum kallað hringrás OPNA mótsins.

Hér að neðan er listi valla sem halda mótið og ártalið í sviga er hvenær mótið var síðast haldið á viðkomandi velli.

Old Course St Andrews – Skotland - 2022

Carnoustie Golf Links – Skotland - 2018

Royal Troon Golf Club – Skotland - 2024

Muirfield – Skotland - 2013

Royal Portrush Golf Club – Norður-Írland - 2025

Royal Birkdale Golf Club – England - 2017

Royal Lytham & St Annes Golf Club – England - 2012

Royal Liverpool Golf Club – England - 2023

Royal St George's Golf Club – England - 2021

Turnberry - Skotlandi - 2009

Portmarnoch Írlandi?

Darbon var spurður út í  Portmarnock á 154. á blaðamannafundi fyrir Opna breska meistaramótinu á Royal Birkdale.

„Ég held að við séum að nálgast það,“ sagði Darbon þegar hann var spurður um nýjustu stöðu mála varðandi möguleikann á að halda elsta meistaramót golfsins á velli sem hefur hýst 19 Írsk opin mót. „Þetta er flókinn staður vegna stærðar Opna breska meistaramótsins. Þannig að það hefur farið fram mikið og gott hagkvæmnisstarf með golfklúbbnum sjálfum, sveitarfélaginu og stjórnvöldum. Við höfum gert stóra hagkvæmnisathugun. Þeirri vinnu er nokkurn veginn lokið. Við höfum staðfest að við teljum okkur geta haldið Opna breska meistaramótið þar.“

Hann gaf einnig í skyn að ætlunin væri að Portmarnock yrði hluti af reglulegri hringrás bæði fyrir Opna breska meistaramótið og Opna breska kvennamótið ef innviðamál yrðu leyst í samvinnu við írsk stjórnvöld.

„Það sem við erum að reyna að gera er að byggja upp líkan sem opnar tækifæri fyrir AIG Opna breska kvennamótið og Opna breska meistaramótið til margra, margra ára,“ sagði hann. „Þetta er því samtalið sem við eigum núna við írsk stjórnvöld og við erum bjartsýn á að þær viðræður stefni í rétta átt.“

Orðrómur hafði verið á kreiki um að Opna breska 2030 væri möguleiki þegar fyrst var rætt um Portmarnock sem keppnisstað fyrir Opna breska meistaramótið, en nýlegri vísbendingar benda til þess að það verði að minnsta kosti nokkrum árum síðar ef af verður, þar sem Darbon sagði að ferlið hingað til hafi tekið lengri tíma en búist var við. En skýrari mynd ætti að liggja fyrir í lok árs 2026.

„Tímarammi – sjáið til, í anda gagnsæis, þá hefur þetta tekið aðeins lengri tíma en ég held að ég og við héldum, en það er flókið að vinna allt þetta hagkvæmnisstarf,“ viðurkenndi hann. „Við vonumst til að hafa nokkuð skýra mynd fyrir lok ársins, svo mikið er víst.“

Mótið verður haldið á Old Course 2027.