Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Tveir Íslendingar við störf á OPNA mótinu á Birkdale
Friðrik t.v. og Haukur Örn á Birkdale. Mynd/gsi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 17. júlí 2026 kl. 11:16

Tveir Íslendingar við störf á OPNA mótinu á Birkdale

Tveir Íslendingar eru við störf á The Open á Royal Birkdale, þeir Haukur Örn Birgisson og Friðrik Þór Halldórsson. Haukur situr í fimm manna framkvæmdastjórn mótsins en Friðrik, sem er reyndasti kvikmyndatökumaður golfs á Íslandi, er með myndavélina á öxlinni og fylgir stjörnuholli fyrstu tvo dagana.

The Open, eða Opna mótið, fer fram dagana 16.-19. júlí. Mótið er haldið í 154. sinn og fer fram á Royal Birkdale í Southport á Englandi. Þetta er í ellefta sinn sem völlurinn hýsir mótið og hefur enginn völlur utan St Andrews fengið The Open oftar frá því Royal Birkdale hélt mótið fyrst árið 1954.

Haukur Örn Birgisson situr í fimm manna framkvæmdastjórn The Open og verður á Royal Birkdale alla mótsvikuna.

Haukur Örn kemur beint frá Genesis Scottish Open, þar sem hann var fulltrúi R&A og The Open. Hann er líka einn af dómurum mótsins. Ólíkt öðrum stórmótum fær hver og einn ráshópur á The Open úthlutaðan dómara sem gengur með þeim allan hringinn. Á fyrsta hring fylgdi Haukur Örn þeim Stewart Cink sem vann mótið 2009 á Turnberry, Scott Vincent frá Simbabve og Svíanum Joakim Lagergren. Á öðrum hring fylgir Haukur þeim Tom Kim, Billy Horschel og Mason Howell.

Friðrik fylgir þremur súperstjörnum á fyrstu tveimur keppnisdögunum. Í því eru Spánverjinn Jon Rahm, heimamaðurinn Tommy Fleetwood og Bandaríkjamaðurinn Jordan Spieth.

Ásamt þeim félögum eru nokkrir aðrir Íslendingar á svæðinu. Þar á meðal eru Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, og Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri GSÍ.