Breytingar í Borgarnesi
Framkvæmdir hafa átt sér stað hjá Golfklúbbi Borgarness undanfarnar vikur en unnið var að því að færa teigana á 8. brautinni sem kölluð er Hótelbrautin.
Ný álma við hótelið krafðist þess en þar að auki var holan ekki vinsæl meðal hótelgesta. Fjölmargir kylfingar hafa slegið í garðana í gegnum tíðina. Nýtt sjónarhorn gerir holuna þar að auki flottari, bæði frá teig og frá hótelinu.

Holan hefur verið stytt en flötin, sem nú er sýnileg, liggur hærra en öftustu teigar, öfugt við fyrri teiga. Góð sýn er á flöt og flagg.
Hótelstjórinn á Hótel Hamri, Sigurður Ólafsson tók nýju teigana formlega í notkun fyrr í vikunni og gerði hann sér lítið fyrir og sló 3 metra frá holu. Ekki fylgdi sögunni hvort að púttið hafi endað ofan í holu.



