Da Silva efstur í Suður-Afríku á 14 undir pari
Adilson Da Silva frá Brasilíu hefur tekið forystuna á Africa Open mótinu sem fram fer á Evrópumótaröðinni. Hann lék frábærlega í dag en lauk fyrsta hring sínum í dag á 62 höggum áður en hann lék annan hringinn á 68 höggum. Samtals er hann á 14 höggum undir pari í mótinu.
Da Silva hefur þriggja högga forystu á Jaco van Zyl frá Suður-Afríku sem er annar. John Parry er í þriðja sæti á 10 höggum undir pari í ágætri stöðu.
„Ég var heppinn í gær. Það voru mjög erfiðar aðstæður fyrir þá sem hófu leik um morguninn. Ég byrjaði seint og setti niður mörg pútt. Það féll allt með mér og mér hefur tekist að lesa flatirnar mjög vel,“ segir Da Silva.
„Púttin hafa verið mín veika hlið að undanförnu en fann þau loksins. Ég hlýt að vera með 23 eða 24 á hringjunum. Ég var með 32 pútt að meðaltali í Asíu í fyrra. Ég er mjög sáttur.“

Adilson Da Silva er efstur á East London vellinum.


