Sigurður Arnar í 9. sæti í Póllandi
Sigurður Arnar Grétarsson, atvinnukylfingur úr GKG endaði jafn í 9. sæti á móti á Nordic mótaröoðinni á Sand Valley golfsvæðinu í Póllandi í dag. Sigurður lék þriðja hringinn á þremur undir pari og -16 í heildina.
Sigurður fékk fjóra fugla og einn skolla í lokahringnum en þetta var þriðja mótið á Sand Valley golfsvæðinu í Póllandi í mánuðinum. Sigurður er í 44. sæti á stigalistanum en hann hefur leikið í þremur mótum á mótaröðinni sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu.
Hann endaði í 8. sæti í fyrsta mótinu af þremur sem haldin voru í Póllandi, komst ekki í gegnum niðurskurðinn í öðru mótinu en varð svo þriðji í lokamótinu.
Sex aðrir íslenskir kylfingar hafa tekið þátt í mótum á Ecco mótaröðinni.
Dagbjartur Sigurbrandsson hefur tekið þátt í átta mótum á mótaröðinni og er í 29. sæti á stigalistanum. Hann hefur tvisvar verið í 8. sæti og einu sinni í 16. sæti og svo í 28. sæti.
Hlynur Bergsson er í 33. sæti og hefur best náð 7. sæti í öðru mótinu á Sand Valley.
Logi Sigurðsson er í 62. sæti en hann hefur tekið þátt í sex mótum og náð best 8. sæti.
Aron Júlíusson er í 115. sæti eftir 8 mót og náð best 31. sæti en hann hefur sex sinnum ekki náð í gegnum niðurskurðinn.
Daníel Ísak Steinarsson er í 123. sæti stigalistans eftir sex mót. Hann hefur best náð 31. sæti.
Skúli Gunnar Ágústsson hefur ekki unnið sér inn stig.


