Guðrún keppir í S-Afríku
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, atvinnukylfingur úr GK endaði í 76. sæti á sínu fyrsta móti á LET mótaröðinni í Evrópu á þessari keppnistíð. Leikið var á Randpark Golf Club vellinum í Randburg í S-Afríku og komst Guðrún ekki í gegnum niðurskurðinn eftir tvo hringi af þremur.
Guðrún lék á einu höggi yfir pari, 73-74 og var þrjú högg frá því að ná niðurskurðinum.
Hafnfirðingurinn verður meðal keppenda á næsta móti sem verður einnig í S-Afríku, en leikið verður á Royal Cape golfvellinum í Höfðaborg.


