Örninn 2025
Örninn 2025

Fréttir

David Duval og Nick Karavites sigruðu á PNC feðgaáskorununni
Sunnudagur 11. desember 2016 kl. 22:08

David Duval og Nick Karavites sigruðu á PNC feðgaáskorununni

David Duval og tengdasonur hans Nick Kravites sigruður á PNC feðgaáskoruninni á Ritz-Carlton golfvellinum í Flórída. Þeir léku á 61 og 62 höggum til að enda 36 holu mótið á 21 höggi undir pari og sigruðu með einu höggi. 

Lið Fred Funk, Retief Goosen og Stewart Cink endaði í öðru sæti á 20 höggum undir pari samtals í mótinu. 

Örninn 2025
Örninn 2025

John Daly og sonur hans John Patrick Daly yngri léku saman í mótinu en sonur hans er 13 ára. Þeir enduðu á 17 höggum undir pari og átti Daly yngri mörg högg enda hörkukylfingur.

Hér má sjá lokastöðuna í mótinu.

Eftir Dag Ebenezersson
[email protected]