Fín byrjun hjá Woods í Ástralíu - Lyle í efsta sæti

Tiger Woods lék fyrsta hringinn í Australian Open mótinu á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari og er í 8.-13. sæti. Woods lék fyrstu sjö holurnar á pari en fékk svo fjóra fugla á næstu sex holum. Hann tapaði ekki höggi á fyrsta hring. Mótið fer fram í Sidney.
Heimamaðurinn Jarrod Lyle er í efsta sæti eftir fyrsta hring en hann lék á 65 höggum eða sjö höggum undir pari og hefur eins höggs forystu á Nick Watney og Dustin Johnson sem koma jafnir í öðru sæti. Fjórir kylfingar eru jafnir í fjórða sæti á fimm höggum undir pari og er Fred Couples þeirra á meðal. Heimamennirnir Adam Scott og Jason Day léku báðir á 69 höggum á fyrsta hring og þykja líklegir til afreka í mótinu.
„Ég var að slá vel í dag og hef verið að gera það á æfingasvæðinu. Það er gott að geta náð að framkvæma það á golfvellinum,“ sagði Woods eftir hringinn. „Ég missti tvær flatir í dag en náði að vinna mig í gegnum það. Það er mjög jákvætt að ég skuli vera að slá eins og ég geri á æfingasvæðinu. Það er mikil framför.“


