Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Nítjánda kynnir sumarkortið 2026: „Alltaf golfveður hjá okkur“
Laugardagur 25. apríl 2026 kl. 09:38

Nítjánda kynnir sumarkortið 2026: „Alltaf golfveður hjá okkur“

KYNNING: Með golfvertíðina handan við hornið og golfvelli landsins að opna hver af öðrum hefur Nítjánda kynnt nýtt sumarkort sem ætlað er kylfingum og þeim sem vilja njóta golfsins, stemningarinnar og félagslífsins allt sumarið.

„Þó að golfvellirnir úti séu að opna þá er alltaf golfveður hjá okkur,“ segja forsvarsmenn Nítjándu. Þar sé hægt að spila golf, hitta félagana, fylgjast með sportinu og njóta kalds drykkjar – óháð veðri og vindum.

Sumarkortið gildir frá 1. maí til 31. ágúst og inniheldur meðal annars frítt golf alla daga frá klukkan 09 til 16, Happy Hour allan daginn alla daga, frítt í pílu og sérstakt 10 skipta bjórkort.

Markmiðið með kortinu er að bjóða gestum upp á einfalda leið til að fá sem mest út úr sumrinu, hvort sem áherslan er á golfæfingar, afslöppun eftir hringinn eða góðan félagsskap yfir ísköldum bjór.

„Þetta er kortið fyrir þá sem vilja meira golf, meiri stemningu og meiri afslátt í einu og sama kortinu,“ segir í kynningu frá Nítjándu.

Verð á sumarkortinu er 49.000 krónur.

Nánari upplýsingar og skráningu má finna á:
https://boka.nitjandagolf.is/vara/sumarkort-2026/