Fitzpatrick vann í Frakklandi
Englendingurinn Matt Fitzpatrick sigraði á Opna franska meistaramótinu á Le Golf National vellinum rétt utan við París. Þetta var í 108. skipti sem mótið fer fram og er eitt það elsta á DP Evrópumótaröðinni.
Fitzpatrick var með fimm högga forskot fyrir lokadaginn en það forskot var komið niður í tvö högg eftir tólf pör í röð hjá Englendingnum. Hann sýndi hins vegar styrk sinn á lokakaflanum, endaði á tuttugu höggum undir pari og tryggði sér sinn ellefta titil á mótaröðinni.
Spánverjinn Angel Hidalgo varð annar og tryggði sér með því þátttökurétt á OPNA mótinu sem fram fer á Old course í St. Andrews á næsta ári.


