Fjölbrautarskóli Suðurlands og Golfklúbbur Selfoss í samstarf
FSu og Golfklúbbur Selfoss hafa gert með sér samkomulag um að stofna Golfakademíu sem mun bætast í hóp þeirra íþróttaakademía sem fyrir eru í skólanum. Alls verða 12 nemendur teknir inn á námsbrautina til að byrja með en þetta kemur fram á dfs.is.
„Ég vil fyrst taka það fram að ég er búinn að vera að horfa með adáunaraugum á akademíu FSu síðan hún var stofnuð,“ sagði Hlynur Geir Hjartarson, framkvæmdarsjóri GOS við dfs.is.
„Akademía FSu er búin að breyta íþróttalífi svæðisins algerlega. Þýðingin fyrir golfklúbbinn sjálfan er sú að við erum búin að vera með ákveðið afreksstarf og eigum orðið nokkra landsliðskrakka. Þetta er svo bara partur af því að halda áfram að byggja upp það starf.
Þetta er ekkert endilega bara Golfklúbbur Selfoss, heldur bara fyrir allt Suðurland, og landið allt ef því er að skipta. Það eru fullt af efnilegum krökkum úti á landi sem ekki komast í afreksstarf og afreksþjálfun hjá menntuðum PGA – þjálfurum. Þá væri þetta mögulega leiðin þeirra. Fara í skóla í FSu og ná í afreksþjálfun í leiðinni.“
Sem kunnugt er opnaði Golfklúbbur Selfoss glæsilega inniaðstöðu á dögunum sem lesa má um hér. Fram kemur að með tilkomu nýju aðstöðunnar hafi loksins verið hægt að bæta golfinu inn í akademíu skólans því nú geta unglingarnir æft yfir vetrartímann.
„Þetta gefur fleiri nemendum tækifæri til að stunda sínar íþróttir á skólatíma,“ sagði Olga Lísa Garðarsdóttir. „Fyrir utan það að þau verða bara miklu betri golfarar á eftir. Þar með græða allir. Þau, klúbburinn, bæjarfélagið og hugsanlega þjóðin, hver veit!“


