Fréttir

Fjölmargir kylfingar klæddust rauðu til heiðurs Woods
Tiger Woods.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
sunnudaginn 28. febrúar 2021 kl. 21:53

Fjölmargir kylfingar klæddust rauðu til heiðurs Woods

Lokahringur Workday heimsmótsins í golfi fer fram í dag, sunnudag og vekur athygli að fjölmargir kylfingar hafa sýnt Tiger Woods stuðning með ýmsum hætti. Woods lenti í hræðilegu bílslysi fyrr í vikunni og ekki er vitað hvort hann snúi aftur á meðal þeirra bestu.

Þeir Jason Day, Rory McIlroy, Tony Finau, Patrick Reed, Tommy Fleetwood, Scottie Scheffler, Carlos Ortiz og Cameron Champ spiluðu allir í rauðum bol og svörtum buxum í dag líkt og Woods gerir venjulega á lokadegi.

Þá voru þeir Matt Kuchar, Day og Bryson DeChambeau með „Tiger“ skrifað á golfbolta sína og Billy Horschel fór þá leið að skrifa „TW“ á derhúfuna sína.

Hér fyrir neðan má sjá brot af því besta frá lokadegi Workday heimsmótsins í golfi.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.