Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Fjölmennt í Minningarmóti Kæa á Ísafirði
Mánudagur 14. júní 2010 kl. 23:33

Fjölmennt í Minningarmóti Kæa á Ísafirði

Minningarmótið um Kæa, Jón Hjört Jóhannesson, fór fram hjá Golfklúbbi Ísafjarðar á Tungudalsvelli á laugardaginn. Alls mættur 48 þátttakendur til leiks en leikið var með Texas Scramble leikfyrirkomulagi. Alls voru 8 lið sem léku undir pari vallar og var mjótt á munum.

Sigurvegarar urðu þeir Guðbjartur Flosason GBO og Janusz Pawel Duszak GBO á 62 höggum nettó. Í öðru sæti á 64 höggum nettó urðu Haukur Eiríksson GR og Hákon Hermannsson GÍ en þess má geta að Haukur er barnabarn Kæa. Þriðju urðu feðgarnir Jakob Tryggvason og Ólafur Njáll Jakobsson GÍ á 65 höggum. Sigurður Fannar Grétarsson GÍ og Högni Gunnar Pétursson GÍ voru einnig á 65 höggum en voru einu höggi lakari á seinni 9 holunum og enduðu því í 4 sæti.

Að venju buðu Vífilfell og Rækjuvinnsla Kampi upp á verðlaun til þeirra sem næst komust holu úr upphafshöggi á 6./15. braut og 7./16. braut. Á 6./15. braut var Gunnar Sigurðsson GÍ næstur holu eða 2,36m frá og hluta hann að launum eina pakkningu af 0,5L Coke frá Vífilfell. Sigurður Fannar Grétarsson GÍ skildi sinn bolta eftir 1,81m frá 7./16. holu og hlaut að launum 2 kg Rækjur frá Kampa.

Shoot Out mót á þjóðhátíðardaginn

Þjóðhátíðardagsmót GÍ verður haldið á fimmtudaginn 17. Júní og verður leiki Shoot Out. Leikar munu hefjast kl. 10:00 og fara allir þátttakendur jafnt af stað. Shoot Out fyrirkomulagið virkar þannig að 10 kylfingar fara saman af stað á 1. teig og sá sem er á lakasta skorinu á hverri holu dettur úr leik. Séu 2 eða fleiri á lakasta skorinu er farið í bráðabana og þá ýmist púttað, vippað eða slegið úr glompu og sá sem er lengst frá dettur út. Í fyrra mættu 18 kylfingar til leiks og skemmtu sér konunglega. Þá sigraði Birkir H. Sverrisson GÍ en þess má til gamans geta að kylfingurinn sem endaði í 5 sæti þá var með um 16 í forgjöf og sló við mörgum mun sterkari kylfingum.

Verðlaunin á Þjóðhátíðardagsmótinu verða einkar glæsilega og í fyrstuverðlaun er glæsilegur Nokia 3120 sími frá Hátækni. Fyrir 2. sæti verður glæsilega grillkarfa frá Samkaup og Skeljungur gefur innkort að verðmæti kr. 5.000-. Þá munu Vífilfell og Rækjuvinnslan Kampi bjóða öllum þátttakendum að reyna sig við nándarverðlaun á 6. og 7. brautum.

Myndir: Á næstefstu myndinni má sjá Guðbjart Flosason GBO og Janusz Pawel Duszak GBO en þeir sigruðu.