Japanski kylfingurinn Tadd Fujikawa kom út úr skápnum á miðvikudaginn, fyrstur allra karlkyns atvinnukylfinga.
Hinn 27 ára gamli Fujikawa hefur undanfarin ár leikið golf á nokkrum af minni mótaröðunum í kringum Bandaríkin en hann hefur sömuleiðis reynslu af stærstu mótum heims þar sem hann lék til að mynda á Opna bandaríska meistaramótinu árið 2006, þá einungis 15 ára gamall.
Þá varð hann sömuleiðis yngsti kylfingurinn í 50 ár til að komast í gegnum niðurskurðinn á PGA mótaröðinni þegar hann endaði í 20. sæti á Sony Open mótinu.
„Ég er samkynhneigður. Mörg ykkar vissuð það eflaust,“ sagði Fujikawa í tilkynningu sinni. „Ég býst ekki við að þið skiljið eða samþykkið mig. Það er mín von að þetta muni hvetja ykkur til meiri samkenndar og til að elska hvort annað.“
Tilkynninguna í heild sinni má lesa í Instagram færslu Fujikawa hér fyrir neðan.